Upplýsingar
Stærra letur
Minna letur
Listi
Listi
21. janúar 2002

Auglýsing um skipulag í Stykkishólmi.

Tillaga að aðalskipulagi Stykkishólms 2002-2022 auglýsist hér með skv. 18. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 með síðari breytingum. Tillagan sem nær til lögsagnarumdæmis Stykkishólmsbæjar er sett fram í greinargerð, þéttbýlisuppdrætti í mkv. 1:10000, sveitarfélagsuppdrætti í mkv. 1:50000, auk skýringaruppdrátta.

Tillagan verður til sýnis í Ráðhúsinu í Stykkishólmi frá 23. janúar til 25. febrúar n.k. kl. 9.3o - 12.15 og 12.45-16.oo alla virka daga.

Tillagan verður jafnframt til sýnis í Amtbókasafninu í Stykkishólmi.

Hægt er að nálgast texta greinargerðar aðalskipulagsins á heimasíðu Stykkishólms -www.stykkisholmur.is-

Skriflegar athugasemdir og ábendingar skulu hafa borist tæknideild Stykkishólmsbæjar eigi síðar en kl. 16.oo mánudaginn 11. mars 2002.

Þeir sem ekki gera athugasemdir innan tiltekins frests , teljast samþykkir tillögunni.

 

Eldri fréttir
Stykkishólmsbær - Kt. 620269-7009 - Hafnargötu 3 - 340 Stykkishólmur - Sími 433 8100 - Fax 438 1705 - stykkisholmur@stykkisholmur.is - Starfsmenn - Veftré