Upplýsingar
Stærra letur
Minna letur
Listi
Listi
4. mars 2004

Tónfundir leikskólabarna og 1. bekkjar GSS

1. bekkur með blokkflauturnar sínar.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hefð er orðin fyrir sameiginlegum tónfundum leikskólabarna og 1. bekkjar Grunnskólans. Einn slíkur var á dögunum er um helmingur 1. bekkjar kom með blokkflauturnar sínar í leikskólann, ásamt Hólmfríði tónlistarkennara sínum og Þórheiði aðstoðarmanni.

Krakkarnir í 1. bekk byrjuðu tónfundinn með því að leika nokkur lög og nokkur börn úr elsta árgangi leikskólans léku síðan og sungu frumsamið lag. Von er á fleiri góðum gestum úr tónlistarskólanum á næstunnim, en þá ætla Martin og Ewa að koma með litlu lúðrasveitina og fleiri hljóðfæraleikara í leikskólann.

Samstarf skólanna þriggja í Stykkishólmi á sviði tónlistar og þess að gera  skólagöngu barna í bænum að samfelldri heild hefur gengið með ágætum og er mikill vilji meðal samstarfsaðilanna til þess að halda því starfi vel á lofti áfram.

Leikskólabörn flytja frumsamið lag.

 

Eldri fréttir
Stykkishólmsbær - Kt. 620269-7009 - Hafnargötu 3 - 340 Stykkishólmur - Sími 433 8100 - Fax 438 1705 - stykkisholmur@stykkisholmur.is - Starfsmenn - Veftré