Upplýsingar
Stærra letur
Minna letur
Listi
Listi
4. mars 2004

"Bærinn okkar" þemað hjá elstu leikskólabörnunum.

 

Í heimsókn hjá lögreglunni - tekin fingraför.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Í vetur hefur Bangsabær, elsta deild leikskólans, unnið með þemað "Bærinn okkar". Þar er lögð áhersla á það að kynnast bænum frá sem fjölbreyttustu sjónarhornum og það að efla skilningin á því hvar rætur okkar liggja. Börnin hafa af þessu tilefni heimsótt all mörg fyrirtæki í bænum, gjarnar vinnustaði foreldra.

Auk þessa hafa ýmsir staðir innan bæjarmarkanna verið skoðaðir gaumgæfilega. Hólmgarðurinn, sundlaugin og gamla kirkjan hafa til að mynda þótt með merkilegri fyrirbærum hér í bæ og að sjálfsögðu hafa Hólmaralögin verið sungin. Á myndunum má sjá hópa af Bangsabæ í heimsóknum á Náttúrustofu Vesturlands og á lögreglustöðinni.

 

Í fangaklefanum

Á Náttúrustofunni.

 

Eldri fréttir
Stykkishólmsbær - Kt. 620269-7009 - Hafnargötu 3 - 340 Stykkishólmur - Sími 433 8100 - Fax 438 1705 - stykkisholmur@stykkisholmur.is - Starfsmenn - Veftré