24. ágúst 2004
Kóngasvarmi og engispretta

Þann 15. ágúst sást einn kóngasvarmi á skógartoppi við Ásklif í Stykkishólmi en þetta er nákvæmlega sami staður og 1-5 kóngasvarmar sáust í fyrrahaust.

Þann 20. ágúst kom Símon Sturluson á Náttúrustofuna með engisprettu sem hann fann í flutningaskipinu Jökulfelli við uppskipun á stórum plaströrum sem flutt voru til landsins frá Gdansk í Póllandi. Líklega er um að ræða Great Green Bush-crisket (Tettigonia viridissima) og er hún á lífi í glerbúri á Náttúrustofunni.
Frétt frá Náttúrustofu Vesturlands.

