EARTH CHECK
BLÁFÁNINN
GRÆNFÁNINN
ENGLISH
Flýtileiðir...
Forsíða
Fundargerðir
Gjaldskrár
Sorphirðudagatal
Eyðublöð
Grunnskólinn
Leikskólinn
Tónlistarskólinn
Leiðin þín:
Forsíða
-
Mannlíf
-
Tíðindi
-
Bæjarfréttir
Þjónustan
Stjórnsýslan
Mannlíf
Bærinn og sagan
Tjaldsvæði og gisting
Sundlaug
Söfn
Þjónustuaðilar&Fyrirtæki
Félagsstarf
Tíðindi
Bæjarfréttir
Svipmyndir
Atburðir
Vefmyndavél
Norðurljósin
Danskir dagar 2012
Áskrift að fréttum
Nafn:
Netfang:
Rss áskrift
28. október 2004
Hvað er Green Globe 21?
Fréttatilkynning frá Framkvæmdaráði Snæfellsness:
Þótt fjallað hafi verið um vottunarsamtökin Green Globe 21 af og til, bæði í bæjarblöðum og dagblöðum, allt frá því að sveitarfélögin fimm á Snæfellsnesi ákváðu að leita eftir vottun frá þeim skýtur þessi spurning aftur og aftur upp kollinum. viljum við því svara henni.
Green Globe 21 eru samtök sem votta ferðaþjónustufyrirtæki sem stunda sjálfbæran rekstur um allan heim. Hugmynd að stofnun samtakanna kviknaði í kjölfar Ríó ráðstefnunnar 1992 þar sem skrifað var undir Dagskrá 21 en Staðardagskrá 21 er byggð á 28. kafla hennar. Green Globe 21 var síðan stofnað með stuðningi Alþjóðaferðamálaráðsins og Alþjóðaferðamálasamtakanna árið 1994. Á undanförnum árum hefur orðið mikil þróun innan Green Globe 21 og hafa samtökin nú staðla til að geta vottað tæplega þrjátíu mismunandi greinar ferðaþjónustunnar, auk þess sem þau votta samfélög og einstaka áfangastaði ferðamanna, t.d. eins og Mallorca. Green Globe 21 eru einu vottunarsamtökin í heiminum sem votta samfélög.
Vottunarsamtökin Green Globe 21 eru sjálfseignarstofnun sem nýtur fjárstuðnings frá ýmsum öðrum stofnunum. Samtökin eru í samstarfi við tæplega tuttugu háskóla í Ástralíu þar sem starfa yfir 200 aðilar sem gera ekkert annað en að rannsaka ferðaþjónustu og sjálfbæra þróun hennar. Hafa þessir rannsóknarmenn lagt grunnin að stöðlum Green Globe 21 sem eru byggðir á Staðardagskrá 21. Green Globe 21 nýtur alþjóðlegrar viðurkenningar og starfar nú í yfir 50 þjóðlöndum í öllum heimsálfum.
Þeir sem leita eftir vottun frá Green Globe 21 ganga í gegnum þríþætt ferli:
A-Skráning í Green Globe 21.
Undirbúningur að næsta ferli, leiðbeiningar um vöruþróun, stefnumótun o.fl.
B-Viðmiðum Green Globe 21 mætt.
Mælingar á tölulegum vísum, markmið og framkvæmdaáætlun. Þarna er Snæfellsnes nú statt.
C-Vottun Green Globe 21.
Viðurkenndur óháður vottunaraðili tekur út starfsemina og kannar hvort viðkomandi uppfyllir staðla Green Globe 21.
Hólaskóli er umboðsaðili Green Globe 21 á Íslandi. Aðilar innan skólans veita leiðbeiningar ef fyrirtæki hafa áhuga á að fara inn í vottunarferli Green Globe 21. Nánari upplýsingar er að finna á
www.holar.is/greenglobe21
eða hjá Kjartani Bollasyni sérfræðingi í umhverfismálum sem starfar á Hólum. Rétt er að benda á að þótt sveitarfélögin á Snæfellsnesi hafi mætt viðmiðum Green Globe 21, veitir það ekki fyrirtækjum innan þeirra heimild til að nota merki samtakanna. Stefna sveitarfélaganna er hins vegar sú að hvetja sem flest fyrirtæki til að leita eftir vottun á rekstur sinn, þar sem það mun hækka vægi Snæfellsness sem heildar gagnvart stöðlum Green Globe 21 í vottunarferlinu. Þeir sem hafa áhuga á að láta votta starfsemi sína geta leitað til allra viðurkenndra vottunarsamtaka.
Senda vini
Þitt nafn:
Þitt netfang:
Skilaboð:
Netföng móttakanda:
Sláðu inn textann á myndinni:
Flýtileiðir...
Forsíða
Fundargerðir
Gjaldskrár
Sorphirðudagatal
Eyðublöð
Grunnskólinn
Leikskólinn
Tónlistarskólinn
Eldri fréttir
2012
JAN
FEB
MAR
APR
MAÍ
JÚN
JÚL
ÁGÚ
SEP
OKT
NÓV
DES
2011
2010
2009
2008
2007
2006
2005
2004
2003
2002
2001
Á næstunni
Í dag
Tónleikar og skólaslit tónlistarskólans
18. maí 2012
Skólastundarferð
22. maí 2012
Blóðsöfnun í Stykkishólmi
23. maí 2012
Útskrift elstu nemenda Leikskólans
Fundargerðir
15.5.2012
485. fundur bæjarráðs
14.5.2012
281. fundur bæjarstjórnar
14.5.2012
149. fundur skipulags- og bygginganefndar
30.4.2012
7. fundur Nefndar um málefni fatlaðra
26.4.2012
280. fundur bæjarstjórnar
Stykkishólmsbær - Kt. 620269-7009 - Hafnargötu 3 - 340 Stykkishólmur - Sími 433 8100 - Fax 438 1705 - stykkisholmur@stykkisholmur.is -
Starfsmenn
-
Veftré