Upplýsingar
Stærra letur
Minna letur
Listi
Listi
7. maí 2002

Rennibrautarmaraþon

Mánudaginn 6. maí kl. 8:00 hófust nemendur 9. bekkjar GSS handa við rennibrautarmaraþon í sundlauginni.  Krakkarnir voru búnir að ganga um bæinn og safna áheitum en þau standa í fjáröflun fyrir Danmerkurferð næsta haust.  Renndu þau sér í hálftíma í senn í hópum, frá kl. 8:00 í gærmorgun til kl. 8:00 í morgun eða samtals 24 klst.  Á þessum tíma tókst þeim að renna sér 11.087 ferðir í rennibrautinni sem er 57 metra löng.  Það hafa væntanlega verið þreyttir og ánægðir nemendur sem fóru heim til sín í morgun eftir langan "sólarhring".

Eldri fréttir
Stykkishólmsbær - Kt. 620269-7009 - Hafnargötu 3 - 340 Stykkishólmur - Sími 433 8100 - Fax 438 1705 - stykkisholmur@stykkisholmur.is - Starfsmenn - Veftré