Upplýsingar
Stærra letur
Minna letur
Listi
Listi
15. maí 2002

Ársreikningur 2001

Ársreikningur Stykkishólmsbæjar og undirfyrirtækja fyrir árið 2001 var samþykktur við síðari umræðu á bæjarstjórnarfundi í gær.

Helstu niðurstöður eru að skatttekjur bæjarsjóðs urðu 294,6 m.kr. og rekstrargjöld 240,4 m.kr. eða 81,6 % af skatttekjum. Fjárfest var hjá bæjarsjóði fyrir 41,8 m. kr. Bæjarsjóður tók engin ný lán á árinu þrátt fyrir 33,2 m.kr. afborganir eldri lána. Veltufjárhlutfall er 0,76 sem væri of lágt ef ekki kæmi til að meðal skammtímaskulda er færð krafa vegna uppsafnaðra fjármuna frá holræsagjaldi sem ætlað er til framkvæmda við endurbætur frárennslisútrása.

Unnið var að lokafrágangi við uppbyggingu Hitaveitu Stykkishólms. Uppsetning varaafls og áframhaldandi tengingar húsa voru meginverkefnin. Fjárfestingar voru fyrir 17,7 m.kr. Skuldir hitaveitunnar eru um 407,8 m.kr. og eigið fé um 134 m.kr. Gengisþróun var hitaveitunni erfið á síðasta reikningsári en er nú að ganga til baka.

Í Stykkishólmi sem víða annarsstaðar er félagslega íbúðakerfið þungur baggi þar sem bæjarsjóður hefur lánað félagslegu íbúðunum 27,4 m.kr. auk þeirra ábyrgða sem á bæjarsjóði hvíla. Þetta er staðan þrátt fyrir að mikil ásókn sé að komast í leigu í þessum íbúðum. Skortur á íbúðahúsnæði í Stykkishólmi er einn helsti akkilesarhæll varðandi frekari íbúafjölgun, en töluverður fjöldi íbúða hefur verið keyptur til sumardvalar. Íbúar í Stykkishólmi voru 1235 1. des. s.l. og hafði fjölgað um 0,6 %.

 

Stykkishólmi 15.05.2002

Óli Jón Gunnarsson

bæjarstjóri.

Eldri fréttir
Stykkishólmsbær - Kt. 620269-7009 - Hafnargötu 3 - 340 Stykkishólmur - Sími 433 8100 - Fax 438 1705 - stykkisholmur@stykkisholmur.is - Starfsmenn - Veftré