Upplýsingar
Stærra letur
Minna letur
Listi
Listi
17. október 2006

Er lögheimili þitt rétt skráð?

Með vísun til laga nr. 73/1952 um aðsetursskipti er hér með vakin athygli á því að tilkynning um aðsetursskipti þarf að berast skrifstofu Stykkishólmsbæjar, Hafnargötu 3. Þeir íbúar sem flutt hafa til Stykkishólms en hafa ekki gengið frá tilkynningu um flutning eru því hvattir til að gera það sem allra fyrst. Tilkynna þarf jafnt um flutning á milli sveitarfélaga sem innanbæjar.

 

Vinnuveitendur eru jafnframt hvattir til að fylgjast með því að starfsfólk þeirra sé rétt skráð.

 

Eyðublöð fyrir aðseturstilkynningar má nálgast á bæjarskrifstofu.

 

Eldri fréttir
Stykkishólmsbær - Kt. 620269-7009 - Hafnargötu 3 - 340 Stykkishólmur - Sími 433 8100 - Fax 438 1705 - stykkisholmur@stykkisholmur.is - Starfsmenn - Veftré