24. júní 2002
Viðgerð lokið á vatnslögn.
Nú um liðna helgi var unnið við leit að leka á vatnslögn Stykkishólmsbæjar og fannst hann með hjálp kafara frá Björgunarsveitinni Berserkjum í gærmorgun.
Í gærkvöldi lögðu svo starfsmenn frá áhaldahúsi ásamt fulltrúum úr björgunarsveitinni í viðgerðarleiðangur, en myndast hafði stórt gat á lögninni þar sem hún liggur í sjó í Vigrafirði og vatnið bunaði þar út. Við verkið voru m.a. notaðar klippur björgunarsveitarinnar ásamt öðrum verkfærum og sóttist verkið mun betur en áætlað hafi verið. Um kl. tvö í nótt var svo viðgerð lokið og vatni hleypt á lögnina á ný.