23. nóvember 2006
Auglýsing um deiliskipulag
Með vísan í 25. grein skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. er auglýst eftir athugasemdum við deiliskipulagstillögu á svæði norðan við Borg í Stykkishólmsbæ.
Tillagan nær til svæðis sem afmarkast af Skúlagötu til vesturs og norðurs, Maðkavíkinni til austurs og Borginni til suðurs. Deiliskipulagstillagan gerir ráð fyrir lóðarstækkun á lóð Skúlagötu nr. 21 og tveimur nýjum íbúðarhúsalóðum með aðkomu frá Skúlagötu. Einnig nær tillagan yfir opið grænt svæði að fjöru Maðkavíkur með gönguleið og geymslusvæði fyrir báta.
Uppdráttur ásamt greinagerð með frekari upplýsingum liggur hjá skipulags- og byggingarfulltrúa í Ráðhúsi Stykkishólmsbæjar Hafnargötu 3, frá og með mánudeginum 27.
nóvember. Einnig er hægt að kynna sér tillöguna á heimasíðu bæjarins (www.stykkisholmur.is)
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna. Frestur til þess að skila inn athugasemdum er til og með 8. janúar 2007.
Athugasemdir ef einhverjar eru, skulu vera skriflegar og berast til skipulags- og byggingarfulltrúa Stykkishólmsbæjar, Hafnargötu 3.
Hver sá sem ekki gerir athugasemdir við tillöguna fyrir tilskilinn frest telst samþykkur henni.
Skipulags- og byggingarfulltrúi í Stykkishólmsbæ.