2. júlí 2002
Þrír háskólanemar fá styrk til rannsókna við Náttúrustofu Vesturlands.
Þrír stúdentar við Háskóla Íslands hlutu nýverið styrki úr sjóðnum “Þekking stúdenta í þágu þjóðar” til rannsókna við Náttúrustofu Vesturlands í Stykkishólmi. Sjóðurinn var stofnaður að frumkvæði Stúdentaráðs Háskóla Íslands til eflingar rannsókna á landsbyggðinni en Byggðastofnun og valin sveitarfélög lögðu fjármagn til sjóðsins.
Verkefnin þrjú hlutu samtals styrki að upphæð kr. 500.000, sem varið verður til að rannsaka hagamýs á eyjum og dýrasvif í stöðuvötnum. Verkefnin verða unnin í sumar og næsta vetur.
Margrét Ösp Stefánsdóttir hlaut styrk vegna verkefnisins “Hagamýs í eyjum á Breiðafirði” en markmið þess er að afla frumupplýsinga um útbreiðslu og þéttleika hagamúsa, auk þess sem könnuð verða áhrif stærðar eyju og búsetusögu á útbreiðsluna. Verkefnið verður unnið í samvinnu við Líffræðistofnun Háskólans. Bryndís Stefánsdóttir hlaut styrk vegna verkefnisins “Erfðafræðilegur samanburður hagamúsastofna við Breiðafjörð” en markmið verkefnisins er að kanna hvort hagamúsastofn úr eyju sé erfðafræðilega frábrugðinn hagamúsastofni á meginlandinu. Verkefnið verður unnið í samvinnu við Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræðum að Keldum. Vegna verkefnanna verða mýs veiddar í lífgildrur á völdum eyjum í ágúst, þær merktar og sýni tekin úr þeim.
Davíð Tómas Davíðsson hlaut styrk vegna verkefnisins “Áhrif bleikju á samsetningu dýrasvifs í stöðuvötnum á Snæfellsnesi.” Dýralíf Baulárvallavatns á Snæfellsnesi er óvenjulegt að því leyti að í því finnst urriði en ekki bleikja. Bleikja lifir að mestu á dýrasvifi en urriði frekar á hornsílum og botndýrum. Kannað verður hvaða áhrif þetta hefur á samsetningu dýrasvifs í vatninu með því að bera það saman við nálægt vatn, Selvallavatn. Verkefnið verður unnið í samvinnu við Líffræðistofnun Háskólans og Náttúrufræðistofu Kópavogs.
Stúdentarnir og vinna þeirra er velkomin viðbót við starfsemi Náttúrustofunnar og eykur fjölbreytni þeirra rannsókna sem þar eru stundaðar. Talið er líklegt að þetta tilraunaverkefni Stúdentaráðs verði endurtekið á næsta ári.