Upplýsingar
Stærra letur
Minna letur
Listi
Listi
19. janúar 2007

Auglýsing um umferð í Stykkishólmsbæ

Eftirfarandi auglýsing hefur verið birt í b- deild Stjórnartíðinda:

 

Samkvæmt heimild í 81. gr. umferðarlaga nr. 50/1987 og að fengnum tillögum bæjarstjórnar Stykkishólmsbæjar hefur eftirfarandi verið ákveðið:

           

1. Stöðvunarskylda  er á Búðanesvegi fyrir umferð um Aðalgötu.

2. Stöðvunarskylda er á Tjarnarási fyrir umferð um Aðalgötu.

3. Biðskylda er á Tjarnarási fyrir umferð um Búðanesveg.

4. Biðskylda er á Búðanesi fyrir umferð um Búðanesveg.

5. Biðskylda er á Hjallatanga fyrir umferð um Búðanesveg.

6. Biðskylda er í Borgarhlíð fyrir umferð um Borgarbraut.

7. Hámarkshraði er 35 km á klst. norðan við mót Nýræktarvegs og Aðalgötu.

8. Að hámarkshraði er 50 km á klst. á  Aðalgötu frá flugvallarafleggjara að Nýræktarvegi. 

 

Reglur þessar taka gildi við birtingu auglýsingarinnar.

Sýslumaður Snæfellinga, 28. desember 2006.

Daði Jóhannesson, settur sýslumaður.

 

Umferðarmerki verða sett upp þegar að veðuraðstæður leyfa. Bæjarstjórinn í Stykkishólmi.

 

 

Eldri fréttir
Stykkishólmsbær - Kt. 620269-7009 - Hafnargötu 3 - 340 Stykkishólmur - Sími 433 8100 - Fax 438 1705 - stykkisholmur@stykkisholmur.is - Starfsmenn - Veftré