Upplýsingar
Stærra letur
Minna letur
Listi
Listi
9. október 2002

Snæfell í úrvaldsdeild KKÍ.

Nú er að hefjast keppnistímabil úrvalsdeildar KKÍ veturinn 2002-2003, þar sem Snæfell hefur nú aftur unnið sér sæti.  Framundan er spennandi vetur, þar sem strákarnir okkar etja kappi við bestu körfuknattleikslið landsins.  Um leið fær liðið talsverða umfjöllun í fjölmiðlum á landsvísu og verður það að teljast jákvætt fyrir bæinn okkar, sem um leið kemst í brennidepil.  Einnig er það ungu íþróttafólki mikil hvatning að hafa í bænum keppnislið í hópi fremstu liða landsins.

Tekist hefur að ná saman öflugu liði, sem fyrst og fremst stendur saman af heimamönnum, með Bárð Eyþórsson í fararbroddi, en hann er þjálfari liðsins.  Leikmenn frá í fyrra halda áfram nema Ólafur Guðmundsson, Guðni Valentínusson og Bjarne Nielsen sem hverfa til náms.  Jón Ólafur Jónsson, Lýður Vignisson og Daði Heiðar Sigurþórsson hafa bæst í hópinn, auk þess sem Hlynur Bæringsson, fæddur Grundfirðingur, hefur komið í liðið.  Einn erlendur leikmaður hefur verið fenginn, en  það er Clifton Bush, sem er Hólmurum að góðu kunnur, þar sem hann lék með liðinu fyrir nokkrum árum.

Undirbúningur hefur staðið yfir í allt sumar, enda mikið í húfi í efstu deild.  Strákarnir hafa æft af kappi og frammistaða þeirra í æfingaleikjum nú í haust gefur okkur góðar vonir um góða útkomu í leikjum vetrarins. 
Fyrstu heimaleikir tímabilsins verða fimmtudaginn 10. október kl. 19:15 á móti Tindastóli frá Sauðárkróki, en þá er fyrsta umferð úrvalsdeildar; og sunnudaginn 13. október aftur á móti Tindastóli, en þá er leikinn fyrri leikur liðanna um KJÖRÍSBIKARINN.  Aðrir leikir liðsins verða auglýstir á heimasíðu Stykkishólmsbæjar (www.stykkisholmur.is) og Vesturlandsvefnum (www.vesturland.is) „á döfinni”, einnig er hægt að lesa allt um leiki úrvalsdeildar á heimasíðu Körfuknattleikssambands Íslands (kki.is).
Eftirtaldir leikmenn æfa nú og keppa með liðinu:

Bárður Eyþórsson
34 ára þjálfari.
Hann á að baki langan og farsælan feril sem leikmaður bæði með Snæfelli og Val, en hann er Snæfellingur að uppruna.  Þetta er þriðja leiktímabil Bárðar sem þjálfari meistaraflokks Snæfells.

Atli Rúnar Sigurþórsson
26 ára framherji (fyrirliði).
Hæð: 188 sm;  Þyngd: 100 kg.
Snæfellingur, en hefur auk þess leikið með ÍR, Þór Þorlákshöfn og Breiðabliki.

Cliffton Bush
31 árs bakvörður/framherji.
Hæð: 196 sm;  Þyngd: 95 kg.
Áður leikmaður með KFÍ, Þór Akureyri og Breiðabliki.

Lýður Vignisson
22 ára bakvörður.
Hæð: 184 sm;  Þyngd: 90 kg.
Uppalinn í Snæfelli, en kemur nú til liðsins aftur frá Haukum.

Sigurbjörn Ingvi Þórðarson
26 ára framherji.
Hæð: 193 sm;  Þyngd: 87 kg.
Áður leikmaður með Þór Þorlákshöfn og Breiðabliki.

Jón Ólafur Jónsson
21 árs framherji.
Hæð: 200 sm;  Þyngd: 95 kg.
Uppalinn í Snæfelli, en hefur auk þess leikið með Stjörnunni.

Baldur Þorleifsson
36 ára miðherji.
Hæð: 194 sm;  Þyngd: 90 kg.
Hefur leikið með Snæfelli svo lengi sem elstu menn muna!!!

Hlynur Bæringsson
20 ára framherji/miðherji.
Hæð:  199 sm;  Þyngd: 98 kg.
Áður leikmaður með Skallagrími.

Andrés Már Heiðarsson
26 ára framherji.
Hæð: 187 sm;  Þyngd: 105 kg.
Áður leikmaður með Þór Þorlákshöfn.

Helgi Reynir Guðmundsson
22 ára bakvörður.
Hæð:  182 sm;  Þyngd: 80 kg.
Snæfellingur, leikur nú sitt fyrsta tímabil í úrvalsdeild.

Daði Heiðar Sigurþórsson
23 ára bakvörður.
Hæð: 186 sm;  Þyngd: .... kg.
Uppalinn í Snæfelli, en hefur auk þess leikið með ÍR og Breiðabliki.

Gunnar Már Gestsson
20 ára framherji.
Hæð: 187 sm;  Þyngd: 85 kg.
Snæfellingur í húð og hár..

Guðlaugur Ingi Gunnarsson
16 ára bakvörður.
Hæð: 180 sm;  Þyngd: 64 kg.
Snæfellingur, nýliði með meistaraflokki í úrvalsdeild.

Guðmundur Helgi Þórsson
19 ára bakvörður.
Hæð: 186 sm;  Þyngd: 95 kg.
Snæfellingur, nýliði með meistaraflokki í úrvalsdeild.

Eldri fréttir
Stykkishólmsbær - Kt. 620269-7009 - Hafnargötu 3 - 340 Stykkishólmur - Sími 433 8100 - Fax 438 1705 - stykkisholmur@stykkisholmur.is - Starfsmenn - Veftré