Upplýsingar
Stærra letur
Minna letur
Listi
Listi
31. júlí 2007

FRÉTTATILKYNNING

Kvikmyndin “Baldur - vegur yfir Breiðafjörð” er heimildamynd um flutninga á farþegum og vörum til byggðarlaga í og við Breiðafjörð á öllum árstíðum.

 

Kvikmyndin er tekin á nokkurra ára tímabili í lok síðustu aldar og er byggð upp í kringum “Baldur” 193 brl. bát sem þjónaði íbúum og ferðamönnum farsællega í rúman aldarfjórðung.

 

Í myndinni er einnig fylgst með byggingu á 7. kynslóð “Baldurs” hjá skipasmíðastöð Þorgeirs og Ellerts á Akranesi. Það var hátækniskips þess tíma og kom til heimahafnar í Stykkishólmi 5. apríl 1990.

 

Framleiðandi myndarinnar er Óli Örn Andreassen kvikmyndagerðarmaður og er hann jafnframt aðalmyndatökumaður. Texti myndarinnar er skrifaður af Guðmundi Lárussyni og þulur í myndinni er Ævar Kjartansson.

 

Kvikmyndin er merkileg heimild um liðna tíð, þar sem t.d. flutningur á bílum yfir Breiðafjörð eins og hann er sýndur í myndinni myndi í dag kallast nokkuð frumstæður.

 

Nú verður almenningi gefinn kostur á að útvega sér myndina, en hún verður gefin út á DVD disk n.k. þriðjudag.

Af því tilefni mun framleiðandi myndarinnar afhenda Sturlu Böðvarssyni, forseta Alþingis og þingmanni norðvesturkjördæmis, fyrsta eintak myndarinnar.

Sturla var góður stuðningsmaður á lokastigi myndvinnslunnar þegar hann var ráðherra samgöngumála.

 

Afhending  myndarinnar og frekari kynning á henni fyrir fjölmiðla fer fram á veitingastaðnum Fimm fiskar í Stykkishólmi þriðjudaginn 31. júlí kl. 11.00.

 

Eftir kynninguna verður myndinni dreift á sölustaði á Snæfellsnesi.

Einnig er unnt að panta hana á netfanginu: baldurdvd@gmail.com

 

Með kveðju,

 

Óli Örn Andreassen

 

Sími: 8439990

 

 

Eldri fréttir
Stykkishólmsbær - Kt. 620269-7009 - Hafnargötu 3 - 340 Stykkishólmur - Sími 433 8100 - Fax 438 1705 - stykkisholmur@stykkisholmur.is - Starfsmenn - Veftré