Ráðstefnustjórar, samgönguráðherra, góðir ráðstefnugestir
Ég vil f.h. bæjarstjórnar Stykkishólms bjóða ykkur öll velkomin til Stykkishólms á ferðamálaráðstefnu 2002. Ég fagna því að Ferðamálaráðstefnan sé nú haldin í Stykkishólmi. Á liðnum árum hefur markvisst verið unnið að því að auka ferðamannastraum til Snæfellsness. Öll sveitarfélögin á Snæfellsnesi og fyrirtæki í ferðaþjónustu hafa staðið að slíku kynningarstarfi ýmist saman eða hvert fyrir sig. Slíkt er langtímaverkefni og þörf á miklu kynningarstarfi til að slíkt skili árangri. Það er því þýðingarmikið að fyrirtæki og stofnanir standi saman um markaðssetningu. Þótt samkeppni sé milli fyrirtækja er þó fyrir mestu að fá ferðamennina á svæðið hvernig síðan sem hinni margfrægu “köku” er skipt. Þar veldur miklu útsjónasemi snyrtimennska og þjónustulund hvers og eins þjónustuaðila hvernig honum tekst til.
Okkur sveitarstjórnarmönnum er oft legið á hálsi fyrir að setja mikla fjármuni í ferðamálin og sumir taka svo djúpt í árina að halda því fram að þetta sé atvinnugrein sem skili litlu eða engu í bæjarsjóð.
Þessa gagnrýni vil ég gera að umtalsefni hér í dag. Það er ljóst að mörg sveitarfélög þ.á. m. Stykkishólmsbær hafa lagt umtalsverða fjármuni til ferðaþjónustufyrirtæka. Það er ekki það sama og að kasta fjármunum á glæ. Við teljum að fjárfesting í mannvirki eins og hótelinu hér í Stykkishólmi sem Stykkishólmsbær á nánast að öllu leiti hafi verið nauðsynleg fjárfesting til framtíðar og enginn hefði viljað sjá okkar fallega bæjarfélag án þess. Við viljum geta tekið á móti gestum þegar þeir koma í heimsókn og því þurfum við að skapa þá aðstöðu að hægt sé að taka á móti þeim.
Sveitarfélögin hafa í gegnum tíðina skapað aðstöðu fyrir margháttaða atvinnustarfsemi m.a. hafnaframkvæmdir og með því skapað útgerðinni viðunandi starfsaðstæður til að þjónusta sín skip og báta. Þetta var fórnarkostnaður þess tíma og víða hefur hann verið greiddur til baka.
Það er staðreynd að þetta hótel var hvati til annarra til athafna sem síðan styrkti svæðið í heild og svo komu önnur hótel á eftir. Auðvitað myndast samkeppni og það er eðlilegt, en þegar miklir atburðir eru og mikill fjöldi ferðamanna kemur á svæðið í einu verða allir að standa saman til að stóratburðir geti orðið að veruleika. Þá njóta flestir eða allir einhvers af kökunni. Ég tel að með þessum orðum hafi ég svarað þeirri gagnrýni sem sumir halda fram varðandi fjárfestingar sveitarfélaga í hótelum og viðlíka framkvæmdum. Auðvitað vildu sveitarfélög á landsbyggðinni vera laus við að taka þátt í slíku en stundum verður að taka þátt í ákveðinni uppbyggingu til að skapa það þjónustumynstur sem við viljum hafa
Hér var stigið mikilvægt skref til að auka framboð afþreyingar í framhaldi af að heitt vatn fannst í nágrenni Stykkishólms 1996 Eftir undirbúningsrannsóknir og hönnun var ráðist í að leggja hitaveitu um allan bæinn og samtímis að byggja upp glæsilegt sundlaugarmannvirki sem tekið var í notkun sumarið 1999. Þarna fór saman mikilvæg framkvæmd sem bæði nýttist íbúum Stykkishólms og jók verulega þjónustuframboð í bænum og virkaði sem aukið aðdráttarafl til bæjarins Nú er í undirbúningi frekari nýting á heita vatninu því það er mjög saltríkt og því heppilegt til baða og hafa margir fundið bót meina sinna með böðum í vatninu.
Í dag er þetta vatn notað í heitu pottana við sundlaugina.
Efnainnihald vatnsins er mjög líkt vatninu í hinum fræga baðstað í Þýskalandi, Baden Baden. Vatnið hefur þegar fengið vottun frá Institut Fresenius sem er stofnun sem sérhæfir sig í vottun bað- og drykkjarvatns. Fyrir nokkru var stofnað hlutafélag um þetta verkefni, en að því standa Stykkishólmsbær og 3P-fjárhús ehf. Ástæða þátttöku Stykkishólmsbæjar er sú trú okkar að þarna sé ennþá einn sprotinn sem sameiginlega geti aukið ferðaþjónustu til Stykkishólms og á Snæfellsnesið allt. Þetta ásamt Eyjunum á Breiðafirði, Snæfellsjökli og annarri náttúrufegurð á Snæfellsnesi gefur breiða flóru áhugasviða sem ferðafólk getur dvalið við að skoða hér á Snæfellsnesi.
Núverandi samgönguráðherra hefur mjög beitt sér fyrir bæði menningartengdri- og heilsutengdri ferðaþjónustu og teljum við okkur vera vel í stakk búin til að taka þátt á því sviði.
Í því sambandi nefni ég
- Heilsuvatnið sem við nefnum svo
- St Fransiskusspítalinn með sína landsþekktu bakdeild.
- Varðveislu og endurbyggingu gamalla húsa hér í bæ sem þáverandi bæjarstjóri og núverandi samgönguráðherra beitti sér mjög fyrir
- Í undirbúningi er stofnun bátasafns sem byggir á bátum Aðalsteins Aðalsteinsonar bátasmiðs frá Hvallátrum og þeirri smíðatækni sem viðhöfð var við Breiðafjörð þegar byggð blómstraði sem best þar.
Í skýrslu sem Rannsóknir og Ráðgjöf er að vinna kemur fram að fjöldi ferðamanna til Stykkishólms á síðasta ári er áætlaður milli 70 og 80 þúsund og heimsóknirnar hafi verið um 110 þúsund. Ekki liggja fyrir nákvæmar upplýsingar um heildarveltu vegna þessara ferðamanna en ráðgjafarfyrirtækið metur það á 280-400 m.kr.
Góðri ráðstefnugestir ! Ég vil að lokum óska ykkur velfarnaðar í störfum ykkar þá tvo daga sem þið dveljið hér. Þingstörfin skili þjóðarbúinu, atvinnugreininni, fyrirtækjum og einstaklingum sem við ferðaþjónustu starfa góðum árangri , öllum til heilla.