18. október 2002
Lenging stálþils í Súgandisey.
Í dag var undirritaður samningur um lengingu stálþils við Súgandisey.
Samið var við lægstbjóðanda Skipavík hf. að undangengnu útboði, samningsupphæð tæplega 8,3 milljónir króna. Framkvæmdir munu hefjast strax í næstu viku og mun lokið fyrir 1. febrúar nk. Með þessum framkvæmdum stórbatnar aðstaða og viðlega við Baldursbryggju.