Upplýsingar
Stærra letur
Minna letur
Listi
Listi
21. október 2002

Starfið í leikskólanum.

Aðalfundur foreldrafélags leikskólans í Stykkishólmi var haldinn sl. fimmtudagskvöld.  Að loknum hefðbundnum aðalfundarstörfum kom Sigþrúður Guðmundsdóttir og kynnti Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga og kynnti einnig starf barnaverndarnefndar.  Þá er búið að gefa út fréttabréf leikskólans sem fylgir hér á eftir.

VETRARSTARFIÐ
Í vetur leggjum við áherslu á skapandi starf og eins og áður verður sérstök áhersla  lögð á tónlist.  Bangsabær verður með þemavinnu í gangi í vetur þar sem unnið verður með ,,Hafið” sem aðal verkefni. Inn í það fléttast ýmislegt sem tengist lífinu við sjávarsíðuna. Stubbasel verður með aðaláherslu á ,,Ég sjálfur” í þemavinnu. Inn í það starf verður fléttað, vináttu, kurteisi og litunum. Krílakot verður einnig með þemavinnu um ,,Ég sjálfur”. Þau eru að læra að kynnast líkama sínum og hvað hinir ýmsu líkamshlutar heita, einnig hvar þau eiga heima og fleira sem tengist þeirra nánasta umhverfi.
Aðlögun er að ljúka á deildunum. Mest var um aðlögun á yngstu deildinni þar sem eru nú 20 börn í blandaðri vistun.  Þ.e. Með vistun í 4—9 tíma. Á Stubbaseli eru einnig 20 börn í blandaðri vistun. Flest eru börnin á Bangsabæ eða 35 í blandaðri vistun.
 
VISTUNARTÍMAR
Nú hafa nýju vistunarsamningarnir tekið gildi. Vonum við að ekkert fari á milli mála  og allur misskilningur hafi verið leystur.
Nú greiðir fólk fyrir þann tíma sem það þarf á að halda og það auðveldar okkur líka allt skipulag. 
 
FATNAÐUR
Eins og endranær, minnum við ykkur á að merkja föt barnanna. Hér eru 75 börn og ómögulegt fyrir starfsfólkið að þekkja hverja einustu flík. Hægt er að panta merkimiða frá Rögn, og nota til að merkja allan fatnað barnanna frá húfu ofan í skó. Það er líka nauðsynlegt að öll börnin hafi með sér auka fatnað í tösku.
 
 
BÍLAR
Við biðjum ykkur að drepa á bílunum á meðan þið farið inn með börnin ykkar og sækið þau.
 
 
STARFSFÓLK
Bangsabær:
·         Elísabet Lára Björgvinsdóttir,
leikskólakennari/deildarstjóri  kl. 8-15
·         Magðalena Hinriksdóttir,
diplóma í leiksk.fr. og nemi í KHÍ            kl. 8-14:15
·         Kristín Ósk Sigurðardóttir, leiðbeinandi      kl. 8-13
·         Sólbjört Sigríður Gestsdóttir,
leiðbeinandi/stuðningsaðili            kl. 8-16
·         Margrét Harðardóttir,
íþróttakennari/leiðbeinandi            kl. 13-17
·         Auður Ásdís Jónsdóttir, leiðbeinandi      kl. 13-17
 
 
 
 
Stubbasel
·         Ásta Valdís Guðmundsdóttir
leikskólakennari/deildarstjóri 8 – 15
·         Ólöf Edda Steinarsdóttir leiðbeinandi 8 – 12
·         Kristín V. Tómasdóttir leiðbeinandi 8 – 12
·         Sigríður Björnsdóttir leiðbeinandi 12 – 16
 
 
Krílakot
·         Elín Guðrún Pálsdóttir
leikskólakennari/ deildarstjóri 85%
·         Kristín Sigurðardóttir leiðbeinandi 8 - 16
·         Ingibjörg Ólafsdóttir leiðbeinandi 8 - 12
·         Elín Dóra Sveinbjörnsdóttir leiðbeinandi 8 – 12
·         Anna Sigríður Guðmundsdóttir leiðbeinandi 85%
·         Bryndís Benediktsdóttir
leiðbeinandi/aðstoð í eldhús/ræstingar 11 - 17
 
Annað starfsfólk.
·         Elín Helga Guðmundsdóttir matráðskona 8 - 14
·         Árdís Gísladóttir ræsting
·         María Guðbjörnsdóttir, afleysingarstarfsmaður  9-17
·         Sigrún Þórsteinsdóttir leikskólastjóri
 
 
 
Fréttir frá Krílakoti
Aðlögun er lokið í bili, næstu börn eru væntanleg í janúar 2003. Á deildinni eru nú 16 börn f.h. og 10 börn e.h. Alls byrjuðu 12 ný börn á deildinni á nýju skólaári. Af 20 börnum eru aðeins 4 stelpur, 11 börn eru fædd árið 2000 og 9 börn fædd 2001.
Enn bíðum við eftir húsgögnum sem voru pöntuð fyrir deildina. Þau eru aðeins lægri en húsgögnin sem fóru niður og heldur hærri en þessi sem eru núna. Við vonum því að þau henti aldrinum vel.
Hópastarf er byrjað og er einu sinni í viku. Á þriðjudögum f.h. og e.h. á miðvikudögum. Þar er unnið með ,,Ég sjálfur”, líkamsvitund og sjálfsmynd.
Hópastarfstímarnir byrja allir eins þ.e. við sitjum í hring og leiðumst og segjum velkomin í hópastarfið, síðan syngjum við eitt til tvö lög eða förum í hreyfileik.
Næsta skref er að tala saman, skoða líkamshlutana og mála, teikna ofl.  Að lokum leiðumst við og þökkum fyrir hópastarfið.  Það getur tekið nokkra hópastarfstíma að fá börnin til að leiðast, sitja kyrr og segja velkomin í hópastarfið.  Eftir því sem þau verða eldri eru gerðar meiri kröfur á þau, þá þurfa þau jafnvel að segja ,,ég heiti” í upphafi tímans og þakka sessunauti fyrir tímann með nafni.
     Við höfum sett okkur markmið og leiðir sem við vinnum eftir í hópastarfinu og viljum við sýna ykkur það til gamans.           
 
 
MARKMIÐ:
-          Að efla sjálfsvitund barnanna og að þau kynnist      líkamanum sínum.
-          Að þau læri nöfn hinna ýmsu líkamshluta t.d. hér eru augun mín.
-          Að þau geri sér grein fyrir til hvers við notum hina ýmsu líkamshluta.
-          Að þau læri að segja nafnið sitt, hvað þau eru gömul og  hvað mamma og pabbi heita.
-          Að þau læri litina.
 
 
LEIÐIR AÐ MARKMIÐUM:
Við munum skoða og tala um líkamann okkar.  Við munum skoða hvern líkamshluta fyrir sig t.d. munum við spá í hendurnar okkar í nokkrar vikur í einu t.d. hvað get ég gert með höndunum, ég nota þær þegar ég er að mála, ég get notað þær í skuggaleik (þá notum við myndvarpa). Við þrykkjum hendurnar o.s.frv.  Við munum skoða okkur í speglum, hvar eru augun o.s.frv. Við munum nota mismunandi efnivið t.d. þekjuliti, vatnsliti, vaxliti, klessulit ofl. Við munum leggja áherslu á að tala um einn lit í einu. Í október munum við vera með gula litinn, mála og lita með gulum lit og syngja um gula litinn (“Ég er gula blómið fína”). Í lok hvers tímabils þ.e. áður en við byrjum á næsta lit, munum við vera með gulan dag, (nánar auglýst þegar nær dregur), þá koma börnin í einhverri gulri flík eða með eitthvað gult.  Við tökum fyrir grunnlitina þ.e. gulan, rauðan og bláan, og líka grænan.
     Við munum reyna að vera duglegar að skrá ferlið og nota bæði myndbandsupptökuvélina og myndavélina í hópastarfinu hjá okkur í vetur. Alltaf er gaman að sjá bæði á ljósmyndum og myndbandi hvað barnið manns hefur verið að gera í leikskólanum. Ekki síst þar sem ekki liggur mikið sýnilegt eftir þetta ung börn, þó að mikil kennsla hafi farið fram yfir veturinn. Leiðbeinendur merkja jafnvel miklar framfarir hjá börnunum, t.d. að þau vilji leiðast, sitja kyrr og taka þátt í starfinu.
Með von um áframhaldandi gott samstarf.
Starfsfólk Krílakots.
 
Fréttir frá Bangsabæ
Starfið hefur farið vel af stað á Bangsabæ.  Á deildinni eru 35 börn, 21 barn fætt 1997 og 14 börn fædd 1998. Mun fleiri drengir eru á deildinni eða 24 á móti 11 stúlkum. Dagskipulagið gefur möguleika á fjölbreyttum verkefnum og ættu því allir að fá eitthvað við sitt hæfi.
 
Málörvun
Öll börnin á deildinni eru í málörvunartímum einu sinni í viku. Þar er unnið með ýmis verkefni sem hvetja börnin til þess að tjá sig og efla skilning þeirra á málinu. Sérstaklega er tekinn fyrir hugtakaskilningur, litir, talning og öll almenn vitneskja ( dagar, mánuðir, árstíðir o.fl.). Einnig er unnið með rím, orð og setningar, atkvæði orða o.fl. og eru elstu börnin m.a. að vinna með námsefnið ,,Ljáðu mér eyra – undirbúningur fyrir lestur”, eftir Ásthildi B. Snorradóttur og Valdísi B. Guðjónsdóttur, talmeinafræðinga.
 
Skólastund
Í skólastund, sem er á þriðjudögum kl. 10-11 og fimmtudögum kl. 13.20-14.20, eru börn sem fara í grunnskólann næsta vetur. Markmið með skólastundum eru að aðlaga börnin auknum kröfum í skólakerfinu, lengja úthald og einbeitingu og stuðla að vellíðan þeirra í grunnskólanum. Unnið er að ýmsum verkefnum og síðast liðinn vetur var tekið í notkun hér námsefnið ,,Kátt er í Kynjadal” sem er stærðfræði fyrir byrjendur, en það efni hefur síðustu ár verið inni í námsefni 1. bekkjar. Byggir það mikið á leik, vinnu með form, tölur, talningu, ýmiskonar greiningu og flokkun og þykir því henta vel námskrá leikskólanna. Er þetta unnið í samvinnu við kennara 1. bekkjar og haldið áfram í 1. bekk þar sem frá var horfið í leikskólanum. Hefur þetta samstarf gefist vel og þykir börnunum spennandi að fá bækur til þess að vinna í.
 
Hópastarf
Hópastarf er tvisvar í viku. Í vetur vinnur Bangsabær með þemað ,,Hafið”. Þar ætlum við að skoða ýmislegt sem tengist hafinu og lífinu við sjávarsíðuna. Markmiðið með verkefninu er m.a.:
·       að börnin fái að kynnast lífríki hafsins, fjörunnar og öllu sem því tengist, af eigin raun og mynda jákvæð viðhorf til þess.
·       að læra að bera virðingu fyrir öðrum lífverum, fjölbreytileika þeirra og hvað þær eru mikilvægur hlekkur í vistkerfi okkar.
·       að börnin geri sér grein fyrir því hversu mikilvægur sjórinn og afurðir hans eru fyrir bæinn okkar.
·       að þau geri sér grein fyrir mikilvægi þess að vernda lífríki hafsins og umhverfið allt.
Ætlunin er að kynnast sem flestum lífverum hafsins í raun. Við förum í fjöruferðir, fáum jafnvel sendingar með lifandi dýrum úr bátunum. Í bland við vettvangsferðir og rannsóknir á efninu munum við nota leik, tónlist, myndlist, leikræna tjáningu, bókmenntir, hreyfingu o.fl. til að gera reynsluna meiri og dýpri svo börnin fái næg tækifæri til þess að vinna úr reynslu sinni.Við munum áfram styðjast við hina svokölluðu ,,könnunaraðferð” í vinnu okkar eins og síðustu ár.
 
 
Val
Val er nú tvisvar í viku á deildinni, fyrir hádegi á mánudögum og eftir hádegi á þriðjudögum. Þar blandast eldri deildirnar tvær þ.e. Stubbasel og Bangsabær og boðið er upp á val um 6-7 svæði í senn. Eru það svæðin leikkrókur, stórikrókur, málningarkrókur, hreyfikrókur, föndurkrókur, heimakrókur og flakkarinn.
 
Lag vikunnar
Eins og undanfarin ár veljum við lag vikunnar í vetur. Er þar átt við lag sem hlustað er á fyrir söngstundir. Eru það mjög fjölbreytt lög sem oft tengjast þemanu hverju sinni. Þessa vikuna er það t.a.m. ,,Stebbi og Lína” með Ríótríóinu sem er lag vikunnar og þykir það svona heldur fíflalegt af manninum að fara á sjóinn í spariskónum sínum. Um leið og börnin þjálfast í því að hlusta á lögin er þeim bent á ýmsa tónlistarþætti er þar má greina svo sem að hlusta eftir einstökum hljóðfærum, hraða, styrkleika o.fl. Fyrir neðan skilaboðatöfluna við deildina má sjá hvaða lag er lag vikunnar hverju sinni.
 
Tákn vikunnar
Við notum svolítið tákn með tali á Bangsabæ. Táknum er bætt inn í sönglög og þjónarnir segja hópnum hvað er í matinn með hjálp tákna. Á hurðinni inn í fremri stofuna hanga tákn hverrar viku.
 
 
Við minnum svo á að leikföng að heiman eru ekki leyfileg á Bangsabæ og nauðsynlegt er að börnunum sé fylgt alla leið upp á deild.
 
Með von um gott samstarf áfram.
Starfsfólk Bangsabæjar.
 
          
FRÉTTIR FRÁ STUBBASELI
 
HÓPASTARF
            Hópastarfið er komið vel í gang og höfum við verið að fjalla um fjölskylduna, vináttu og um hvað við erum orðin stór. Þá vaknar upp sú spurning af hverju við stækkum svona? Við höfum sett upp lista yfir það sem við borðum og erum að byrja umræður um hollt og óhollt. Af því tilefni biðjum við ykkur að safna umbúðum af hollu/óhollu sem börnin geta notað í þemavinnunni.
           
1-2-3
Við höfum einnig verið að prófa okkur áfram með agakerfið 1-2-3, en það byggist á því að barn sem ítrekað viðheldur óæskilegri hegðun, er ,,tekið úr umferð” í 3 mín. Það að vera ,,tekin úr umferð” á ekki að vera sett upp á neikvæðan hátt á neinn máta. Barnið er einfaldlega tekið út úr leiknum og því gefið tækifæri til að hvíla sig/róa sig niður og þannig er þessi óæskilega hegðun stöðvuð. Að þrem mínútum liðnum er barninu hleypt inn í leikinn að nýju. Hægt er að fá frekari upplýsingar um framkvæmd og hugmyndafræði ef óskað er.
 
MÁLÖRVUN
Öll börn fá nú málörvun einu sinni í viku í ca 20 mínútur í senn. Stuðst er við bókina ,,Markviss málörvun þjálfun hljóðkerfisvitundar” eftir Helgu Friðfinnsd. ofl. Í byrjun erum við að þjálfa börnin í hlustun, en hún þjálfar athygli og einbeitingu barnsins og er mikilvæg undirstaða lestrarnáms. Hlustunarleikir eru mjög fjölbreyttir og taka á mismunandi þáttum. S.s. umhverfishljóðum, ,,tilbúnum hljóðum” (bolti sem skoppar, flauta o.s.frv.) auk þess að efla heyrnrænt skammtíma – og langtímaminni. Börnin þurfa að fylgja fyrirmælum, koma hugsunum sínum í orð og eru miðpunktur athyglinnar. Næst á eftir hlustun er farið í rímleiki, en það verður ekki fyrr en síðar í vetur.
Með ósk um áframhaldandi gott samstarf, starfsfólk Stubbasels.
 
 
Samstarf skólanna
Áfram verður haldið með samstarf skólanna þriggja hér í Stykkishólmi. Við fáum í vetur nokkra hópa úr 1. bekk í nemendaskiptum á meðan að elstu börnin okkar fara í heimsókn í grunnskólann. Krakkar úr 1. og 2. bekk koma í vetur og halda blokkflaututónleika fyrir okkur og ýmsar sameiginlegar uppákomur verða. Markmiðið með samstarfinu er fyrst og fremst að byrja á því að leggja grunninn að tónlistarlegri færni í leikskólanum, brúa bilið á milli skólanna og efla samskipti skólanna. Það er trú okkar að sterk tengsl séu á milli tónlistar og annars náms. Allar deildir koma að einhverju leyti að þessu samstarfi en mest er það áberandi í verkefnum Bangsabæjar.

Eldri fréttir
Stykkishólmsbær - Kt. 620269-7009 - Hafnargötu 3 - 340 Stykkishólmur - Sími 433 8100 - Fax 438 1705 - stykkisholmur@stykkisholmur.is - Starfsmenn - Veftré