Upplýsingar
Stærra letur
Minna letur
Listi
Listi
22. október 2002

Brunaæfing í grunnskólanum.

Í morgun var árleg brunaæfing í grunn-skólanum.  Útkall kom kl. 8:30 til slökkviliðsins
frá yngri deildunum við Skólastíg.  Þessi æfing var til þess gerð að æfa starfsfólk og nemendur í rýmingu húsnæðis.  Vel gekk að tæma skólann en nú reyndi á nýja brunastiga við barnaskólann sem settir voru upp síðastliðinn vetur.  Farið var með börnin yfir á dvalarheimili aldraðra hinum megin við Skólastíginn og fór talning fram þar til að ganga úr skugga um að allir væru komnir út heilir á húfi.

Að lokinni æfingu fór Þorbergur Bæringsson, slökkviliðs-stjóri yfir aðgerðina með krökkunum og útskýrði af hverju þetta er gert og hlustuðu þau hugfangin á stjórann.
 
Kl. 10:30 var svo kallað út í æfingu í eldri deildirnar við Borgarbraut og gekk rýming húsnæðis mjög vel þar líka.  Farið var með börnin á Hótel Stykkishólm þar sem talning fór fram.  Í báðum skólunum voru tveir krakkar faldir sem reykkafarar urðu að leita að og fundust þeir í báðum tilfellum.  Slökkviliðsstjórinn var ánægður með hvernig æfingarnar gengu fyrir sig og sagði að þetta væri þjónusta sem slökkviliðið byði upp á t.d. gætu þeir heimsótt fyrirtæki í bænum sem óska eftir því og farið yfir hlutina með starfsfólki til að bæta viðbrögð ef kemur til bruna.

 

Bent er á að Brunavarnir Stykkishólms og nágrennis eru með heimasíðu undir "starfsemi" hér á síðunni (http://stykk.is/slokkvilid).

 

Eldri fréttir
Stykkishólmsbær - Kt. 620269-7009 - Hafnargötu 3 - 340 Stykkishólmur - Sími 433 8100 - Fax 438 1705 - stykkisholmur@stykkisholmur.is - Starfsmenn - Veftré