Upplýsingar
Stærra letur
Minna letur
Listi
Listi
5. nóvember 2002

Gráhegri í Stykkishólmi

Gráhegri hefur sést í Stykkishólmi að undanförnu.  Hann sást fyrst 24. október við Maðkavík en hefur síðan sést við höfnina og aftur við Maðkavík í gær 4. nóvember.
Gráhegrar eru stórir og til-komumiklir vaðfuglar.  Þeir verpa ekki á Íslandi en nokkrir flækjast hingað á hverju hausti og sjást þá helst í fjörum og við ár og vötn sem ekki frjósa.  Þeir eru háfættir og hálslangir, ljósir á kvið en með gráa vængi.  Einnig má sjá svartar flikrur á kvið og höfði.  Á flugi eru þeir fremur þunglamalegir en eru auðþekkjanlegir á breiðum og löngum vængjum, sem minna reyndar dálítið á arnarvængi nema bognari.  Að auki greinast þeir frá örnum á flugi á lögnum fótum sem skaga aftur fyrir stélið.  Vænghafið er 155-175 cm. en standandi eru þeir 84-102 cm. á hæð, eftir því hvort hálsinn er uppréttur.
Talið er að flestir gráhegrar komi hingað frá Noregi en hafi villst af leið sinni suður til mið-Evrópu.
Tekið er við ábendingum um sjaldgæfa og/eða óvenjulega fugla á Náttúrustofu Vesturlands í síma 438 1122 eða í tölvupósti nsv@stykkisholmur.is
 
Róbert A. Stefánsson,
forstöðumaður.

 

Á meðfylgjandi mynd má sjá gráhegrann í fjöruborðinu í Maðkavík, en hún er tekin með stafrænni myndavél í gegnum kíki Náttúrustofunnar.

Eldri fréttir
Stykkishólmsbær - Kt. 620269-7009 - Hafnargötu 3 - 340 Stykkishólmur - Sími 433 8100 - Fax 438 1705 - stykkisholmur@stykkisholmur.is - Starfsmenn - Veftré