Upplýsingar
Stærra letur
Minna letur
Listi
Listi
15. nóvember 2002

Dagur íslenskrar tungu

Í dag og í gær hafa börn af Bangsabæ og Stubbaseli, tveimur deildum Leikskólans í Stykkishólmi, farið í hópum og heimsótt bókasafnið í Stykkishólmi.  Heimsóknin er farin í tilefni af degi íslenskrar tungu, sem er á morgun 16. nóvember en síðla árs 1995 samþykkti ríkisstjórnin tillögu menntamálaráðherra um að 16. nóvember ár hvert, fæðingardagur Jónasar Hallgrímssonar, verði dagur íslenskrar tungu.  Í tengslum við daginn hefur menntamálaráðuneytið beitt sér fyrir átaki í þágu móðurmálsins til að auk veg þess á allan hátt.
Öllum skólastofnunum landsins voru send bréf og veggspjald til að minna á daginn.  Þá endurútgefur menntamálaráðuneytið rit um málþroska barna sem m.a. verður sent til allra leikskóla landsins í tilefni dagsins.  Kjörorð dagsins í ár er:  Móðurmálið mitt góða.

 

Eldri fréttir
Stykkishólmsbær - Kt. 620269-7009 - Hafnargötu 3 - 340 Stykkishólmur - Sími 433 8100 - Fax 438 1705 - stykkisholmur@stykkisholmur.is - Starfsmenn - Veftré