11. desember 2007
Jólastund í Ráðhúsinu og jólaljósin tendruð

Föstudaginn 7. desember voru jólaljósin tendruð á jólatrénu í Hólmgarði. Að venju var það 1. bekkur sem sá um það. Tréð er gjöf frá Drammen vinabæ Stykkishólms í Noregi. Erla, bæjarstjóri, flutti ávarp, Lúðrasveit Tónlistarskóla Stykkishólms spilaði nokkur lög og Kvenfélagið Hringurinn var með heitt súkkulaði og smákökur til sölu í Freyjulundi. Þá var dansað í kringum jólatréð og sungin jólalög þar til jólasveinarnir birtust með gott í poka.

Laugardaginn 8. desember sl. var svo jólastund fyrir börn í Ráðhúsinu. Að henni stóðu Stykkishólmsbær og Amtsbókasafnið. Hefur þessi jólastund verið árlegur viðburður síðustu ár. Ragnheiður af bókasafninu las upp úr bókum og bækur lágu einnig frammi til kynningar og skoðunar. Þá voru sungin jólalög og gengið í kringum jólatréð undir gítarleik Ellýar. Jólasveinar komu í heimsókn og heilsuðu upp á börnin og færðu þeim smá glaðning úr poka sínum.



