11. desember 2002
Helgileikur í Stykkishólmskirkju.
Í gær voru nemendur 3. bekkjar grunnskólans í Stykkishólmi með árlegan helgileik í Stykkishólmskirkju. Buðu þau börnunum af Leikskólanum að koma og horfa á, ásamt nemendum úr yngri deildum grunnskólans við Skólastíg. Tendrað var á kertaljósum og sungin voru jólalög. Yngri barnakórinn kom fram og tvær stúlkur spiluðu á píanó og Séra Gunnar Eiríkur útskýrði jólaguðspjallið fyrir börnunum. Þessi stund er árlegur viðburður í jólaundirbúningi barnanna og er ávallt hátíðleg og skemmtileg stund.