Upplýsingar
Stærra letur
Minna letur
Listi
Listi
27. desember 2002

Brunavarnis Stykkishólms og nágrennis í nýtt húsnæði.

Í dag fluttu Brunavarnir Stykkishólms og nágrennis í nýtt húsnæði við Nesveg en slökkviliðið deilir húsinu með Björgunarsveitinni Berserkjum.  Við flutninginn flutti bæjarstjóri ávarp og afhenti Þorbergi Bæringssyni, slökkviliðsstjóra formlega lykla að húsnæðinu.  Ávarp bæjarstjóra fer hér á eftir.

Ágætu tilheyrendur.

 

Ég fagna þeim áfanga að nú flytja Brunavarnir Stykkishólms og nágrennis í þessa glæsilegu aðstöðu og um leið má segja að alhliða björgunarmiðstöð sé orðin að veruleika í Stykkishólmi.

Það er að færast í vöxt að þessi háttur sé á hafður og veit ég um aðra staði sem eru og hafa verið að taka sama hátt upp. 

Það er ljóst að slökkvistöð var ekki efst á forgangslista bæjarstjórnar en þegar leitað var eftir þessu samstarfi af hálfu Björgunarsveitarinnar Berserkja var slegið til þar sem ljóst var að um hagkvæma uppbyggingu og samnýtingu gæti verið að ræða.  Að sjálfsögðu fer það mikð eftir því hvernig stjórnendum tekst til með að höndla þann möguleika.

 

Samningurinn er grundvallaður á byggingarkostnaði í september 2001 og hljóðaði afhendingarverð frá Björgunarsveitinni upp á 13,5 milljónir króna auk gatnagerðar- og tengigjalda.  Til viðbótar eru framkvæmdir vegna flutnings og aðstöðusköpunar fyrir um 700 þús. kr.

 

Ég ætla hér ekkert að ræða um byggingarframkvæmdirnar sem slíkar en ég tel að þar hafi almennt vel til tekist hjá aðalverktakanum Skipavík hf.

 

Ég vil svo biðja Þorberg Bæringsson, slökkviliðsstjóra að koma og taka við lyklum að slökkvistöðinni.  Ég óska honum og Brunavörnum Stykkishólms og nágrennis til hamingju með ný og glæsileg húsakynni og vona að starfsemin verði farsæl og lán leiki yfir starfsemi þeirr sem hér hefur aðsetur.

 

 

Eldri fréttir
Stykkishólmsbær - Kt. 620269-7009 - Hafnargötu 3 - 340 Stykkishólmur - Sími 433 8100 - Fax 438 1705 - stykkisholmur@stykkisholmur.is - Starfsmenn - Veftré