16. apríl 2008
Viðburðavika Vesturlands 23.-30. apríl 2008
Sett verður upp listasmiðja fyrir börn frá 1.- 7.bekk í Stykkishólmi í tengslum við viðburðarviku Vesturlands.
Listasmiðjan er samstarfsverkefni Stykkishólms, Grundarfjarðar og Snæfellsbæjar.
Þema listasmiðjunnar er" Snæfellsjökull"
Í Stykkishólmi verður boðið upp á myndlist, leiklist og dans.
Leiðbeinendur verða: Sigrún Svavarsdóttir, Auður Rafnsdóttir og Erna Rut Kristjánsdóttir.
Hvetjum við öll börn á þessum aldri til að koma og vera með.
Nánari upplýsingar og skráning eru hjá:
Katrínu Pálsdóttur s. 4381562 gsm 8476501
Margrét Ebba Ísleifsdóttur gsm 8604303
Skráningu þarf að vera lokið föstudagskvöldið 18. apríl.