28. janúar 2003
Skólaheimsókn á Náttúrustofuna
Krakkar í 1.-5. bekk Grunnskólans í Stykkishólmi heimsóttu Náttúrustofu Vesturlands miðvikudaginn 22. janúar. Þar sýndi starfsfólk Náttúrustofunnar brot af því lífríki sem finna má á botni Breiðafjarðar og fræddu börnin um lifnaðarhætti dýranna. Þarna mátti sjá krabba, krossfiska, samlokur, sæbjúgu, sæsnigla, burstaorma, fiska o.fl. Stærstum hluta dýranna höfðu skipverjar á Kristni Friðrikssyni safnað deginum áður en hluta dýranna söfnuðu starfsmenn Náttúrustofunnar við Stykkishólm. Lifandi dýrin vöktu kátínu og hrifningu unga fólksins.
Myndasafn frá heimsókninni er að finna á heimasíðu Náttúrustofunnar undir liðnum Fréttir http://www.breidafjordur.is/NSV.htm