Upplýsingar
Stærra letur
Minna letur
Listi
Listi
13. febrúar 2003

Atvinnuvegasýning á Vesturlandi

Ákveðið hefur verið að halda atvinnuvegasýningu í og við Íþróttamiðstöðina í Stykkishólmi dagana 23. - 25. maí næstkomandi.
 

Sýningin sem var haldin 1999 hefur sýnt að með slíkum sýningum náum við árangri á

heimsmælikvarða við markaðssetningu og uppbyggingu nýrra viðsskiptasambanda.

Alls tóku um 90 fyrirtæki þátt í sýninguni stór sem smá. Aðsóknin var hreint frábær.

Talið er að 9 - 10 þúsund manns hafi sótt sýninguna þá þrjá daga sem hún stóð yfir.

 

Sýningin Vesturvegur 2003 er haldin til að kynna á ný hverskonar atvinnu,

fyrirtæki, þjónustuaðila og handverksfólk sem eru með starfsemi á eða selja

þjónustu sína á Vesturlandi, og minna þjóðina á okkur og okkar landssvæði. Þá

ætlum við líka að kynnast hvert öðru og hafa það skemmtilegt um leið.

 

Í íþróttamiðstöðinni verða settir upp sýningarbásar, handverkssvæði og einnig verður aðstaða fyrir stærri hluti á útisvæði, s.s. sumarhús, báta, bíla, vélar o.fl. Á sýningunni verður bryddað upp á ýmsum skemmti- og menningarviðburðum.
 

Með þessari sýningu vonumst við til að vekja meiri athygli á atvinnulífi hér á svæðinu, styrkja stöðu fyrirtækja og ekki síst að vekja áhuga aðila utan svæðis á að koma og skoða hvað við höfum upp á að bjóða. Einnig er markmiðið að við verðum sjálf meðvitaðri um þá fjölbreyttu starfsemi sem er á svæðinu. Reynsla af öðrum sýningum á Ísland og í útlöndum sýnir að samvinna milli fyrirtæki verður betri og styrkir þau á marga vegu.
 
Efling Stykkishólms stendur fyrir sýningunni ásamt atvinnumálanefnd Stykkishólmsbæjar. Efling er félag fyrirtækja, stofnana og einstaklinga í Stykkishólmi og nágrenni. Hlutverk Eflingar er að vinna að framfaramálum í menningar og atvinnulífi. Unnið hefur verðið að fjölbreyttum verkefnum undanfarin ár t.d Sumartónleikum í Stykkishólmskirkju, Dönskum dögum í Stykkishólmi, rekstri upplýsingarmiðstöðvar og tjaldsvæðis og tekið þátt í kynningu á Snæfellsnesi í samstarfi við önnur grasrótarfélög á Snæfellsnesi og fl..
 
Þetta er í annað sinn sem Efling ræðst í þetta stórverkefni en vonir standa til að með samstilltu átaki aðila á Vesturlandi takist að vekja athygli landsmanna á þessum landshluta svo um munar á ný. Verkefnisstjóri sýningarinnar er Nadine Walter með henni vinnur 3 manna stjórn ásamt framkvæmdastjóra Eflingar Ernu Guðmundsdóttur.

 

Nadine Walter,

verkefnisstjóri.

Eldri fréttir
Stykkishólmsbær - Kt. 620269-7009 - Hafnargötu 3 - 340 Stykkishólmur - Sími 433 8100 - Fax 438 1705 - stykkisholmur@stykkisholmur.is - Starfsmenn - Veftré