18. febrúar 2003
Temple Spa opnar heimasíðu
Heilsuefling Stykkishólms, sem er í eigu Stykkishólmsbæjar og nokkurra fjárfesta, er eigandi Temple Spa. Markmið þeirra er að byggja upp í Stykkishólmi heilsutengda þjónustu á heimsmælikvarða. Það hefur verið draumur margra síðan heita vatnið fannst við Hofsstaði árið 1997 og í ljós kom að það er einstaklega græðandi, að setja af stað ferðaþjónustu sem nýtti kosti vatnsins og staðsetninguna í Stykkishólmi. Nú er sá draumur að verða að veruleika og er Temple Spa að bjóða upp á einstakar heilsuhelgar í Stykkishólmi, þar sem búið er að tvinna saman frábæra fyrirlestra, hreyfingu, sælkeramat, menningu og annað góðgæti. Nánari útlistun á því sem boðið er upp á er að finna á vef þeirra: http://www.templespa.is/