EARTH CHECK
BLÁFÁNINN
GRÆNFÁNINN
ENGLISH
Flýtileiðir...
Forsíða
Fundargerðir
Gjaldskrár
Sorphirðudagatal
Eyðublöð
Grunnskólinn
Leikskólinn
Tónlistarskólinn
Leiðin þín:
Forsíða
-
Mannlíf
-
Tíðindi
-
Bæjarfréttir
Þjónustan
Stjórnsýslan
Mannlíf
Bærinn og sagan
Tjaldsvæði og gisting
Sundlaug
Söfn
Þjónustuaðilar&Fyrirtæki
Félagsstarf
Tíðindi
Bæjarfréttir
Svipmyndir
Atburðir
Vefmyndavél
Norðurljósin
Danskir dagar 2012
Áskrift að fréttum
Nafn:
Netfang:
Rss áskrift
26. febrúar 2003
SSV þróun og ráðgjöf
Starfsmenn SSV og Atvinnuráðgjafar Vesturlands voru á ferðinni í Stykkishólmi í gær, þriðjudaginn 25. febrúar, ásamt atvinnumálanefnd Stykkishólmsbæjar og heimsóttu þau 27 fyrirtæki í Stykkishólmi.
Almennt fannst þeim ríkja bjartsýni hjá forsvarsmönnum fyrirtækja í bænum, þrátt fyrir sviptingar í atvinnulífi á staðnum vegna vegna mikils samdráttar í veiðiheimildum á hörpudiski á Breiðafirði en SSV þróun og ráðgjöf er að vinna að skýrslu um samfélagsleg áhrif samdráttarins á Stykkishólm.
Um kvöldið var haldinn opinn fundur um atvinnumál á Hótel Stykkishólmi og mættu um 90 manns á fundinn. Framsögumenn voru Ólafur Sveinsson, forstöðumaður ATSSV, Erla Björg Guðrúnardóttir, framkvæmdastjóri Heilsueflingar Stykkishólms, Róbert A. Stefánsson, forstöðumaður Náttúrustofu Vesturlands og Guðrún Þórarinsdóttir, sérfræðingur á
Hafró
.
Ólafur kynnti starfsemi SSV-þróun og ráðgjöf, en fjórir starfsmenn eru á þeirra vegum og þar af er einn starfsmaður staðsettur hér í Stykkishólmi og hvatti hann fólk til að nýta sér þjónustuna sem þau bjóða upp á. Þá flutti Erla Björg fyrirlestur um verkefni sem Heilsueflingin er farin af stað með undir heitinu
"Dýrðardagar í Stykkishólmi"
en það eru þrjár tegundir af námskeiðum sem verða hér í Stykkishólmi á vordögum, sjá nánar á
heimasíðu
þeirra. Róbert Arnar flutti fyrirlestur um sóknarfæri í rannsóknum og þróun og kynnti starfsemi
Náttúrustofu Vesturlands
. Síðasti frummælandinn var Guðrún og ræddi hún m.a. um möguleika á hörpudiskeldi ásamt því að kynna hugsanlegar orsakir á ástandi hörpudiskstofnsins m.a. hækkun sjávarhita, áhrif veiðarfæra o.fl. Sýni af lifandi hörpudiski voru send til tilraunastöðvarinnar á Keldum í lok síðasta árs til rannsókna og er niðurstöðu þeirra rannsókna að vænta á næstunni.
Ýmsar fyrirspurnir komu úr sal að lokinni framsögu þeirra og voru aðstandendur fundarins ánægðir með hvað fundarmenn tóku góðan þátt í fundinum sem var vel heppnaður og athyglisverður.
Flýtileiðir...
Forsíða
Fundargerðir
Gjaldskrár
Sorphirðudagatal
Eyðublöð
Grunnskólinn
Leikskólinn
Tónlistarskólinn
Eldri fréttir
2012
JAN
FEB
MAR
APR
MAÍ
JÚN
JÚL
ÁGÚ
SEP
OKT
NÓV
DES
2011
2010
2009
2008
2007
2006
2005
2004
2003
2002
2001
Á næstunni
Í dag
Blóðsöfnun í Stykkishólmi
Í dag
Útskrift elstu nemenda Leikskólans
25. maí 2012
Afmælishátíð
30. maí 2012
Grænn dagur
Fundargerðir
15.5.2012
485. fundur bæjarráðs
14.5.2012
281. fundur bæjarstjórnar
14.5.2012
149. fundur skipulags- og bygginganefndar
30.4.2012
7. fundur Nefndar um málefni fatlaðra
26.4.2012
280. fundur bæjarstjórnar
Stykkishólmsbær - Kt. 620269-7009 - Hafnargötu 3 - 340 Stykkishólmur - Sími 433 8100 - Fax 438 1705 - stykkisholmur@stykkisholmur.is -
Starfsmenn
-
Veftré