4. mars 2003
Öskudagur
Öskudagurinn verður haldinn með nokkuð hefðbundnu sniði miðvikudaginn 5. mars. Kennt verður fram að hádegi í skólanum. Klukkan 14:00 fer furðufatagangan af stað frá Barnaskólanum, gönguna mun leiða Gunnar Svanlaugsson.
Skemmtun verður fyrir 6. bekk og yngri í íþróttahúsinu kl. 16 - 18, börnin greiða kr. 200 við innganginn og fá svala og góðgæti að skemmtun lokinni. Einnig verður boðið upp á kaffi til sölu fyrir þá fullorðnu á kr. 150.
Um kvöldið verður ball í X-inu fyrir nemendur 7. - 10. bekkjar á milli kl. 20:00 og 22:00. Búningaval er frjálst þetta árið að öðru leiti en því að allir eiga að koma með hálsbindi. Aðgangseyrir á ballið er kr. 200, fyrir það fá börnin svala og góðgæti.
Foreldrafélag GSS