4. mars 2003
Upplestrarhátíð 7. bekkjar
Í gær fór upplestrarhátíð nemenda í 7. bekk Grunnskólans í Stykkishólmi fram í Stykkishólmskirkju. 9 nemendur tóku þátt og nemendur Tónlistarskóla Stykkishólms komu fram.
Fóru krakkarnir með óbundinn og bundinn texta og var 3 manna dómnefnd í því vandasama hlutverki að velja 3 nemendur úr hópi þátttakenda sem allir stóðu sig framúrskarandi vel.
Þrjár stúlkur þær Brynja Ólafsdóttir, Kristín Lilja Gunnsteinsdóttir og Sigrún Björk Sævarsdóttir voru valdar úr hópnum til að fara á Hellissand nk. mánudag 10. mars í áframhaldandi keppni milli skólanna á Nesinu og óskum við þeim velfarnaðar á þeim vettvangi.
Stóra upplestrarkeppnin hefst ár hvert á degi íslenskrar tungu og lýkur í mars með því að valdir eru 3 bestu upplesarar í hverju byggðarlagi.
Eins og sjá má hér að neðan var yndislegt að koma út að lokinni keppninni, kvöldstilla og fegurð yfir Snæfellsnesinu.