Rokkabillýband Reykjavíkur um landið þvert og endilangt.
Sunnudaginn 14. september á Fimm Fiskum Stykkishólmi
Tónleikarnir hefjast kl. 21:00 og miðaverð er kr. 1.500
Rokkabillyband Reykjavíkur er í heljarinnar tónleikaferð um þessar mundir sem telur um 15 tónleika víðsvegar um landið.

Reykjavík kominn út
Rokkabillybandið kveður sér hljóðs með nýrri plötu er hlotið hefur nafnið Reykjavík eftir samnefndu lagi og hefur titillagið fengið mjög góð viðbrögð og hljómað stíft á öldum ljósvakans. Gripurinn kom út 28.08.2008 kl. 13:19 að staðartíma og var afstaða stjarnanna afkvæminu mjög hagstæð. Platan inniheldur 10 lög eftir hina ýmsu höfunda og má þar nefna Guðmund Jónsson úr Sálinni, Hreim Örn Heimisson úr Landi og sonum, Skerjaskáldið Kristján Hreinsson og Tómas Tómasson söng- og gítarleikara sveitarinnar sem á um helming laga og texta. Reykjavík er kominn í allar helstu plötuverslanir en það er Geimsteinn, útgáfufyrirtæki Rúnars Júlíssonar sem gefur út.
Rokkabillybandið 20 ára
Þessi margrómaða sveit fagnar 20 ára afmæli um þessar mundir og er nú skipuð stofnmeðlimunum þeim Tómasi Tómassyni söng- og gítarleikara, Birni Vilhjálmssyni kontrabassaleikara og Sigfúsi Óttarssyni trommuleikara auk Emils Guðmundssonar ásláttarleikara.
Sigfús á þó ekki heimagegnt að þessu sinni og mun Jóhann nokkur Hjörleifsson oft kenndur við Sálina halda uppi merkjum sveiflunnar við þetta tækifæri. En það má til gamans geta að Jóhann er þá kominn í hóp sinna gömlu félaga því hann sat við trommusettið þegar síðasta plata sveitarinnar „Læf“ var hljóðrituð á Gauki á Stöng sáluga fyrir hartnær 15 árum.
Tónleikadagskráin
Rokkabillýband Reykjavíkur um landið þvert og endilangt.
22. ágúst Seyðisfjörður Herðubreið
23. ágúst Egilsstaðir Valaskjálf (Ormsteiti)
4. sept. Keflavík Paddys (Ljósanótt)
5. sept. Flateyri Vagninn
6. sept. Ísafjörður Edinborgarhúsið
11. sept. Sauðárkrókur Mælifell
12. sept. Akureyri Græni Hatturinn
13. sept. Húsavík Gamli Baukur
14. sept. Stykkishólmi Fimm Fiskar
16. sept. Grindavík Salthúsið
17. sept. Flúðir Útlaginn
18. sept. Reykjavík Organ
19. sept. Kópavogur Players
20. sept. Selfoss 800-Bar
21. sept. Þorlákshöfn Ráðhúskaffi
Allar nánari upplýsingar:
www.promo.is
promo@promo.is
Sími 511-2220
MySpace
http://www.myspace.com/rockabillybandreykjavikur
Rokkabillýband Reykjavíkur - Ný plata 28. 08. 2008 kl 13:19
Reykjavík kemur út
Rokkabillýband Reykjavíkur sú gamalreynda sveit kveður sér hljóðs með nýrri plötu. Platan hefur hlotið nafnið Reykjavík eftir samnefndu lagi og kom út í dag fimmtudaginn 28. ágúst kl. 13:19. Titillagið Reykjavík hefur fengið feikna góð viðbrögð og hljómað stíft á öldum ljósvakans.
Ýmsir höfundar
Reykjavík inniheldur tíu lög, öll með íslenskum textum og koma nokkrir höfundar við sögu. Tómas Tómasson söng- og gítarleikara sveitarinnar á um helming laga og texta. Guðmundur Jónsson og Hreimur Örn Heimisson eiga sitt lagið hvor, Guðmundur við eigin texta, lag Hreims við texta Kristjáns Hreinssonar. Eitt lag er samvinnuverkefni þeirra Tómasar og Guðmundar og að auki eru þrjú erlend lög við texta Kristjáns Hreinssonar. (Sjá lagatitla )
Hljóðrituð í ríkisútvarpinu
Platan var að grunninum til hljóðrituð í Stúdíó 12 Ríkisútvarpinu Efstaleiti og stjórnaði Tómas upptökum en Óskar Páll Sveinsson hljóðblandaði í Stúdíó Draumi. Vilhjálmur Warén hannaði umslagið og það er Geimsteinn, útgáfufyrirtæki Rúnars Júlíssonar sem gefur út.
Plata vikunnar á Rás 2
Reykjavík er plata vikunnar á Rás 2 í þessari viku (1.-6. sept.) og skorum við hér með á landsmenn að leggja við hlustir. Reykjavík er kominn í allar helstu plötuverslanir.
Með bestu kveðjum
Rokkabillýband Reykjavíkur
Allar nánari upplýsingar
Tómas Tómasson s. 868-0900
Netfang: rockabillybandreykjavikur@gmail.com
MySpace: http://www.myspace.com/rockabillybandreykjavikur
Geimsteinn ehf s. 421-2717 / 862-7947
Netfang: runarjul@geimsteinn.is
Heimasíða: www.geimsteinn.is
Lagatitlar og röð er þessi:
1. Reykjavík 4:40
Lag og texti: Tómas Tómasson.
2. Séð og heyrt 4:09
Lag: Hreimur Örn Heimisson. Texti: Kristján Hreinsson.
3. Dreyminn 3:55
Lag og texti: Guðmundur Jónsson.
4. Bjartir Dagar 3:43
Lag: Calvin Boze. Texti: Kristján Hreinsson.
5. Tuð 4:18
Lag og texti: Tómas Tómasson.
6. Þúsund ár 5:18
Lag: Tómas Tómasson, Guðmundur Jónsson. Texti: Tómas Tómasson.
7. Ella Matt 3.37
Lag: R. Moseley, Wayne Watts. Texti: Kristján Hreinsson.
8. Eitthundrað og áttatíu kíló 2:50
Lag: Joan Whitney, Alex C. Kramer. Texti: Kristján Hreinsson.
9. Koma og fara 4:03
Lag og texti: Tómas Tómasson.
10. Stúlkan mín 3:45
Lag og texti: Tómas Tómasson.
Bestu kveðjur
www.promo.is
promo@promo.is
Tel. 354-511-2220