Upplýsingar
Stærra letur
Minna letur
Listi
Listi
11. mars 2003

Fræðslumiðstöð í Egilshúsi

Tilefni þessa pistils er að kanna viðhorf og áhuga bæjarbúa á að nýta sér Fræðslumiðstöð í Egilshúsi sem er ein leið til að efla atvinnuástand staðarins ekki síst með það í huga að auka fjölbreytni, draga fram hugmyndir fólksins og auka menntunarstig bæjarfélagsins.

Til greina kemur m.a. fjarnám á framhaldsskólastigi, fjarnám við Háskólann á Akureyri og fjarnám við Viðskiptaháskólann á Bifröst. Nánari upplýsingar um það sem áðurnefndir skólar bjóða upp á er að finna á heimasíðum þeirra www.unak.is og www.bifrost.is

Fjarnám er vaxandi þáttur í námsframboði Háskólans á Akureyri og fer kennsla m.a. fram með gagnvirkum fjarfundabúnaði. Netið er notað í sívaxandi mæli og má þar nefna notkun WebCT námsumhverfisins sem nemendur nota til að spyrja spurninga, sækja gögn og skila verkefnum. Sífellt bætist við þá möguleika sem ný tækni færir kennurum til að miðla þekkingu til nemenda sinna. Háskólinn á Akureyri býður m.a. upp á fjarnám á eftirfarandi námsleiðum: Heilbrigðisdeild-Hjúkrunarfræðibraut, Kennaradeild-Leikskólabraut, Rekstrar- og viðskiptadeild, Auðlindadeild-Fiskeldisbraut, Líftæknibraut, Sjávarútvegsbraut og Umhverfisbraut.

Viðskiptaháskólinn á Bifröst býður einnig upp á fjarnám. Í Fjarnámsdeild er námið sambærilegt við þriðja árið í Rekstrar- og viðskiptadeild. Fjarnámið er skipulagt sem hlutanám og fer fram með hálfum hraða miðað við reglulegt nám, tekur 2 ár og lýkur með B.S. gráðu í viðskiptafræðum. Kennsla fer að mestu fram á Netinu, þar sem nemendur hlusta á fyrirlestra, spyrja spurninga, sækja gögn og skila verkefnum. Tölvupóstur og símafundir koma í stað hefðbundinna viðtalstíma. Þrjár helgar á hverju misseri koma svo allir fjarnámsnemendur saman á Bifröst til verkefna- og hópvinnu.

Þá er einnig möguleiki á að stunda fjarnám við einhvern af framhaldsskólum landsins.

Þeim sem hafa áhuga á að kynna sér þessi mál frekar er bent á að hafa samband við Írisi á skrifstofu Stykkishólmsbæjar í síma 438-1700 eða í tölvupósti á: iris@stykkisholmur.is

 

Eldri fréttir
Stykkishólmsbær - Kt. 620269-7009 - Hafnargötu 3 - 340 Stykkishólmur - Sími 433 8100 - Fax 438 1705 - stykkisholmur@stykkisholmur.is - Starfsmenn - Veftré