25. september 2008
Útboð - Stykkishólmsbær
Stykkishólmsbær óskar eftir tilboðum í verkið:
Þjónustuhús á tjaldstæði
Verkið felst í byggingu og fullnaðarfrágangi þjónustuhúss á tjaldstæði Stykkishólmsbæjar. Í húsinu eru átta salerni og önnur hreinlætisaðstaða fyrir ferðamenn. Húsið er 59 m² brúttó auk yfirbyggðs útipalls sem er 28 m². Undirstöður og botnplata eru úr steinsteypu, gólf eru með gólfhita og flísalögð. Útveggir eru úr timbri, klæddir með harðviði og trefjaplötum að utan og gifsi að innan, með gluggum úr áli. Þak er timburþak með torfi. Innveggir eru úr gifsi og salernisskilrúm úr trefjaplötum.
Skiladagur verksins er 15. maí 2009.
Útboðsgögn verða seld á skrifstofu Stykkishólmsbæjar, Hafnargötu 3, 340 Stykkishólmi. Verð útboðsgagna er kr. 5.000.
Útboðsgögnin er einnig hægt að nálgast hér.
1. Teikningar
2. Úboðslýsing-tilboð
3. Verklýsing
4. Tilboðsskrá
Tilboð verða opnuð á sama stað, föstudaginn 3. október 2008, kl. 10:00.