9. október 2008
Tilkynning frá bæjarstjóra Stykkishólmsbæjar
Á þessum tímum mikilla sviptinga í þjóðfélaginu er ástæða til að greina frá stöðu bæjarfélagsins. Stykkishólmsbær fjármagnaði sig í vor með hagstæðum lánum fyrir þeim framkvæmdum sem fyrirhugaðar hafa verið á árinu 2008. Fjármunir bæjarins eru og hafa verið á bankareikningum viðskiptabanka bæjarins en ekki í sjóðum og því er engin hætta á að fjármunir tapist vegna lækkana á gengi í sjóðum. Bæjarfélagið hefur engar skuldbindingar í erlendri mynt. Þau lán sem tekin voru á sínum tíma í erlendri mynt voru allar greiddar upp samhliða sölu á Hitaveitu Stykkishólmsbæjar til Orkuveitu Reykjavíkur árið 2005.
Eins og staðan er í dag bendir allt til þess að fjarhagsáætlun ársins standist. Engar stórframkvæmdir eru í burðarliðnum og þeim verkefnum sem farin eru í gang verður ekki frestað. Verið er að vinna að framkvæmdum við íþróttamiðstöðina og nokkrum viðhaldsverkefnum á fasteignum í eigu bæjarins. Undirbúnings- og hönnunarvinnu við sameiningu grunnskólans við Borgarbraut heldur áfram en ekki er tímabært að taka afstöðu til þess hvort framkvæmdum við stækkun skólans sem áætlað er að hefjist næsta haust verði frestað. Nýverið var bygging á þjónustuhúsi á tjaldsvæðinu boðin út og verður þeim framkvæmdum ekki frestað. Bæjarfélagið hefur eflst í ferðaþjónustu undanfarandi ár og því brýnt að draga ekki úr því þó að á móti blási um stund. Ennfremur er rétt að taka það fram að undirbúningur að uppsetningu á sýningu úr eldfjallasafni Haraldar Sigurðssonar í bíóhúsinu næsta sumar verður einnig haldið áfram.
Það sem er að gerast í þjóðfélaginu um þessar mundir hefur mikil áhrif á okkur öll en lítið sem við getum að gert. Það er því mikilvægt að taka lífinu með ró og horfa fram á veginn. Börnin okkar skynja ástandið án þess að skilja hvað er að gerast í þjóðfélaginu og læt ég því hér fylgja með sameiginlega yfirlýsingu um velferð barna.
Erla Friðriksdóttir,
bæjarstjóri
Sameiginleg yfirlýsing um velferð barna
Hugum að velferð barna.
Íslendingar standa nú á miklum tímamótum sem hafa víðtæk áhrif á unga sem aldna. Mikilvægt er að huga sérstaklega að velferð barna og unglinga á þessum tímum.
Höfum eftirfarandi í huga:
- Jákvæð samvera barna með fjölskyldunni skapar öryggi.
- Börnin þurfa að finna að á þau sé hlustað og að þeirra nánustu séu ekki í hættu
- Höldum fjölskylduvenjum og festu þó að mikið gangi á í samfélaginu.
- Notum matartíma fjölskyldunnar til að sinna þörfum barnanna fyrir jákvæða athygli.
- Ræðum á yfirvegaðan hátt að fjármálakreppan er tímabundin.
- Útskýrum fyrir börnunum að framtíðin er björt þótt á móti blási í dag.
- Verum góð fyrirmynd þegar kemur að vanda og lausnum.
- Styðjum börnin til þess að takast á við mótlæti á uppbyggjandi hátt
- Hlúum vel að þeim sem okkur þykir vænt um
Verum þess minnug að hér er um tímabundna erfiðleika að ræða sem við Íslendingar munum vinna okkur í gegnum. Miklu máli skiptir að við tökumst á við þessa erfiðleika þannig að við byggjum á styrkleikum okkar og leggjum áherslu á baráttugleði, bjartsýni og samkennd.
Heilbrigðisráðuneytið
Menntamálaráðuneytið
Félags- og tryggingamálaráðuneytið
Barnaverndarstofa
Landlæknir
Lýðheilsustöð
Umboðsmaður barna
BUGL/LSH
Vinnueftirlitið