Upplýsingar
Stærra letur
Minna letur
Listi
Listi
18. mars 2003

Snæfellsnesvegur (54) um Kolgrafafjörð

 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Tilboð voru opnuð 10. mars sl.  Leggja skal nýjan veg og smíða brú yfir Kolgrafafjörð auk tenginga.  Alls er lengd nýja kaflans um 7,3 km. þar af 230 m. löng steypt eftirspennt brú, um 530 m. löng fylling í sjó og um 500 m. löng fylling yfir lón (Hópið).
Verkið er boðið út á evrópska efnahagssvæðinu.

 

 

 

Helstu magntölur: 
Vegur og leiðigarðar:  fyllingar 508.000 m3, neðra burðarlag 35.000 m3, efra burðarlag 12.000 m3, tvöföld klæðning 50.000 m2, fláafleygar 20.000 m3, skeringar 115.000 m3, grótvörn 60.500 m3, síulag 48.000, vegrið 3.800 m. 
Brú: mót 4.500 m2, steypustyrktarjárn 114,6 t., steypa 2.400 m3, spennt járnalögn 59,5 t, vegrið á brú og fyllingu 536 m.

Verki skal vera að fullu lokið þann 1. október 2005.

 

Lægstbjóðandi var Jarðvélar ehf., Kópavogi með 516.819.950 eða 82,6% af kostnaðaráætlun.

 

Nánari upplýsingar um framkvæmdir í Kolgrafafirði hér.

Eldri fréttir
Stykkishólmsbær - Kt. 620269-7009 - Hafnargötu 3 - 340 Stykkishólmur - Sími 433 8100 - Fax 438 1705 - stykkisholmur@stykkisholmur.is - Starfsmenn - Veftré