19. mars 2003
Dælubrunnur við Stöð

Unnið er við að setja niður dælubrunn við Stöðina. Ætlunin er að losa þar gamlar rotþrær og koma þar með skólpi frá nokkrum húsum við Silfurgötu í réttan farveg. Sprengja þurfti klöpp til að koma dælubrunninum niður.
Verkið er unnið af áhaldahúsmönnum Stykkishólmsbæjar og miðar því vel áfram.
