Upplýsingar
Stærra letur
Minna letur
Listi
Listi
14. nóvember 2008

FORSTÖÐUMAÐUR DVALARHEIMILIS ALDRAÐRA Í STYKKISHÓLMI

Stykkishólmsbær óskar eftir að ráða í starf forstöðumanns Dvalarheimilis aldraðra, Stykkishólmi. Æskilegt er að starfsmaður geti hafið störf sem fyrst, eða eftir nánara samkomulagi.
Laun eru samkvæmt kjarasamningum Launanefndar sveitarfélaga.

 

Starfssvið:
Umsjón og ábyrgð á umönnun heimilisfólks og sjúklinga í hjúkrunarrýmum
Umsjón og ábyrgð á rekstri Dvalarheimilisins

 

Menntunar- og hæfniskröfur:
Hjúkrunarfræðimenntun eða jafngilt nám
Frumkvæði og metnaður
Sjálfstæð og öguð vinnubrögð
Góðir samskiptahæfileikar

 

Dvalarheimili aldraðra í Stykkishólmi, sem er sjálfseignarstofnun, tók til starfa 9. ágúst 1978. Á heimilinu eru átján eins manns- og tvö tveggja manna herbergi. Fimmtán íbúðir eru tengdar Dvalarheimilinu og þar er salur sem nýttur er til tómstunda- og félagsstarfs fyrir aldraða.

 

Umsóknir skulu berast Stykkishólmsbæ, Hafnargötu 3, 340 Stykkishólmi eða á netfangið erla@stykkisholmur.is

 

Umsóknarfrestur er til og með 1. desember nk.

 

Nánari upplýsingar veitir Erla Friðriksdóttir, bæjarstjóri, sími: 433 8100 og netfang: erla@stykkisholmur.is
 

 

Eldri fréttir
Stykkishólmsbær - Kt. 620269-7009 - Hafnargötu 3 - 340 Stykkishólmur - Sími 433 8100 - Fax 438 1705 - stykkisholmur@stykkisholmur.is - Starfsmenn - Veftré