4. desember 2008
Jólastund fyrir börn á Amtsbókasafninu
Laugardaginn 6. desember nk. kl. 13:00 verða Amtsbókasafnið og Stykkishólmsbær með jólastund fyrir börn á Amtsbókasafninu.
Amtsbókasafnið kynnir barnabækur og sungin verða jólalög. Jólasveinar koma í heimsókn og það er aldrei að vita nema eitthvað gott leynist í pokahorninu. Allir hjartanlega velkomnir að eiga þessa stund með okkur.

Að jólastundinni lokinni er tilvalið að rölta við í Norska húsinu og skoða jólin þar en það verður opið að jólastundinni lokinni. Krambúð hússins er í jólabúningnum og eins er sýning á jólum eldri tíma.
Amtsbókasafnið, Stykkishólmsbær, Norska húsið.
Ýttu á meira til að sjá fleiri myndir.

