Upplýsingar
Stærra letur
Minna letur
Listi
Listi
8. desember 2008

Jólastund á Amtsbókasafninu og jólaljósin tendruð

Það var nóg um að vera í Stykkishólmi um helgina. Á föstudaginn voru jólaljósin tendruð á jólatrénu í Hólmgarði. Að venju var það 1. bekkur sem sá um að tendra ljósin á trénu. Tréð er gjöf frá Drammen vinabæ Stykkishólms í Noregi. Erla, bæjarstjóri, flutti ávarp, Lúðrasveit Tónlistarskóla Stykkishólms spilaði nokkur lög og Kvenfélagið Hringurinn var með heitt súkkulaði og smákökur til sölu í Freyjulundi. Þá var dansað í kringum jólatréð og sungin jólalög þar til jólasveinarnir birtust með gott í poka.   

 

 

Á laugardaginn var svo jólastund fyrir börn á Amtsbókasafninu. Að henni stóðu Stykkishólmsbær og Amtsbókasafnið. Hefur þessi jólastund verið árlegur viðburður síðustu ár. Ragnheiður af bókasafninu las upp úr bókum og bækur lágu einnig frammi til kynningar og skoðunar. Þá voru sungin jólalög og gengið í kringum jólatréð. Jólasveinarnir létu svo aftur sjá sig þennan dag og heilsuðu upp á börnin á bókasafninu og færðu þeim smá glaðning úr poka sínum. Mjög góð mæting var á þessa samverustund og heppnaðist hún vel.

 

 

Eldri fréttir
Stykkishólmsbær - Kt. 620269-7009 - Hafnargötu 3 - 340 Stykkishólmur - Sími 433 8100 - Fax 438 1705 - stykkisholmur@stykkisholmur.is - Starfsmenn - Veftré