Upplýsingar
Stærra letur
Minna letur
Listi
Listi
21. apríl 2003

Fjarnám frá Háskólanum á Akureyri.

 
 
 
 
 
 
 
 
 
Fyrirhugað er að bjóða upp á fjarnám frá Háskólanum á Akureyri í Stykkishólmi frá og með næsta hausti.
Háskólinn á Akureyri hefur auglýst fjarnám og er móttaka umsókna fyrir skólaárið 2003-2004 hafin.  Í boði er eftirfarandi nám:
 

  • Auðlindadeild: fiskeldi, líftækni, sjávarútvegsfræði, umhverfisfræði.
  • Kennaradeild: grunnskólabraut, leikskólabraut.
  • Rekstrar- og viðskiptadeild: ferðaþjónusta, fjármál, markaðsfræði, stjórnun.
 
Vakin er athygli á að fyrirkomulag og miðlun fjarnámsins er mismunandi eftir deildum.  Áhugasamir eru hvattir til að leita frekari upplýsinga á kynningarvef Háskólans á Akureyri.
 
Kynningarfundur verður í Ráðhúsinu í Stykkishólmi þriðjudaginn 22. apríl nk. kl. 18:00 og eru allir sem áhuga hafa hjartanlega velkomnir

Eldri fréttir
Stykkishólmsbær - Kt. 620269-7009 - Hafnargötu 3 - 340 Stykkishólmur - Sími 433 8100 - Fax 438 1705 - stykkisholmur@stykkisholmur.is - Starfsmenn - Veftré