15. nóvember 2001
Í ró og næði.

Bryddað hefur verið upp á skemmtilegri nýjung í sundlauginni sem hefur fallið vel í kramið hjá bæjarbúum og fleirum.
Nú hefur nokkrum sinnum verið boðið upp á kósý kvöld í sundlauginni. Er þá aldurstakmark 18 ár eftir kl. 20:00 og er opið lengur en vanalega eða til kl. 22:30.
Engin ljós loga úti nema í lauginni sjálfri en friðarljósum er dreift um sundlaugarsvæðið og skapar það notalega stemningu. Stundum hafa verið óvæntar uppákomur eins og um daginn þegar kirkjukórinn mætti á svæðið og hóf upp raust sína við mikinn fögnuð laugargesta. Einnig hefur verið boðið upp á kaffi og konfekt o.fl. Hafa bæjarbúar tekið þessari tilbreytingu vel í skammdeginu og vonum við að svo verði áfram. Við hér á vef Stykkishólmsbæjar ætlum að fylgjast með hvenær þessi kvöld eru og láta ykkur vita.
Skemmtileg nýjung
- 16.11.2001 14:06:22
Þessi ánægjulega viðbót við annars ágæta starfsemi sundlaugarinnar verður eflaust til að afstressa Hólmara. Meira af þessu !
Guðmundur