22. janúar 2009
Ráðning forstöðumanns Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga
Stjórn félags- og skólaþjónustu Snæfellinga hefur ráðið Svein Þór Elínbergsson sem forstöðumann Félags – og skólaþjónustu Snæfellinga. Tekur Sveinn við starfinu þegar núverandi forstöðumaður Albert Eymundsson lætur af störfum nú á vormánuðum.
Sveinn er nú aðstoðarskólastjóri Smáraskóla í Kópavogi og fyrrum skólastjóri Grunnskóla Snæfellsbæjar. Hann er með viðbótarmenntun á sviði stjórnunar menntastofnana og hefur gegnt fjölmörgum trúnaðarstörfum.