Upplýsingar
Stærra letur
Minna letur
Listi
Listi
25. apríl 2003

Gleðilegt sumar

Komið í mark í víðavangshlaupi

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Gleðilegt sumar og takk fyrir veturinn.  Fjölbreytt dagskrá var fyrir bæjarbúa á sumardaginn fyrsta.

 
Dagurinn hófst á því að Leikskólinn í Stykkishólmi var með opið hús frá kl. 11:00 til 13:00 þar sem sýndur var afrakstur starfsins í vetur þar sem viðfangsefnin voru af ýmsum toga eftir aldri, þroska og áhugasviði barnanna.  Börnin voru með söngstundir hver á sinni deild og buðu gestum að þiggja veitingar að þeim loknum.  Margt var um manninn í leikskólanum og vöktu verkefni barnanna verðskuldaða athygli.

 

Víðavangshlaupið hófst svo kl. 13:30 undir forystu Umf. Snæfells, Foreldrafélags grunnskólans og Lionsklúbbsins Hörpu.  Hlaupið var í aldursflokkum og fengu allir þátttakendur verðlaunapening og drykk að hlaupi loknu, en mjög góð mæting var í hlaupið í ár.
Að loknu hlaupi voru börnin í fyrsta bekk, fædd 1996, boðuð í Lionshúsið þar sem þau fengu afhenta reiðhjólahjálma frá Lionsklúbbnum Hörpu eftir að lögreglan var búin að ræða við þau um nauðsyn á notkun hjálmanna.

 

 

Lionsklúbburinn var svo með vöfflur með rjóma, heitt súkkulaði og kaffi til sölu í Lionshúsinu og á ágóði þeirrar sölu að renna til leikfangakaupa fyrir Leikskólann í Stykkishólmi.
Þá hélt Vorvaka Emblanna áfram í Tónlistarskólanum, leirlistasýning í grunnskólanum, golfmót og fleira þannig að allir fengu eitthvað við sitt hæfi.

Eldri fréttir
Stykkishólmsbær - Kt. 620269-7009 - Hafnargötu 3 - 340 Stykkishólmur - Sími 433 8100 - Fax 438 1705 - stykkisholmur@stykkisholmur.is - Starfsmenn - Veftré