22. apríl 2003
Kynningarfundur um Framhaldsskóla Snæfellinga
Þann 6. febrúar sl. skrifuðu menntamálaráðherra, Tómas Ingi Olrich, og fulltrúar sveitarfélaga á Snæfellsnesi undir samkomulag um að hafinn yrði undirbúningur að stofnun framhaldsskóla á norðanverðu Snæfellsnesi.
Í tilefni af þessu verða haldnir upplýsingafundir um hinn nýja skóla dagana 28. til 30. apríl, annars vegar fyrir verðandi nemendur og hins vegar fyrir alla áhugasama.
Fundir fyrir verðandi nemendur verða haldnir í grunnskólum sveitarfélaganna og verður fundurinn hér í Stykkishólmi kl. 16:00 miðvikudaginn 30. apríl, Ólafsvík kl. 16:00 mánudaginn 28. apríl og í Grundarfirði kl. 16:00 þriðjudaginn 29. apríl. Á fundunum verður rætt hvernig skóli þetta verður og hvaða væntingar eru gerðar til hans. Eru allir 9. og 10. bekkingar, nemendur í framhaldsdeildum, sem og aðrir áhugasamir hvattir til að mæta.
Opnir upplýsingafundir fyrir alla áhugasama verða síðan haldnir mánudaginn 28. apríl kl. 20:00 í Félagsheimilinu Klifi í Ólafsvík, þriðjudaginn 29. apríl kl. 20:15 í samkomuhúsinu í Grundarfirði og miðvikudaginn 30. apríl kl. 20:00 í félagsheimilinu á Hótel Stykkishólmi.
Undirbúningur að stofnun skólan er á frumstigi, en á fundunum verður elitast við að veita upplýsingar um það hvernig skóli er fyrirsjáanlegt að þetta verði, þær áherslur sem verða til hliðsjónar við val á námsbrautum, húsnæðismál skólans, verkáætlunina fyrir undirbúninginn og hvað er framundan hjá sveitarfélögunum vegna verkefnisins. Eru allir Snæfellingar hvattir til að koma á fundina og kynna sér málið.