12. mars 2009
Skákmót á Árnamessu nk. laugardag
Mæting á skákmótið nk. laugardag er kl. 12.45 í Grunnskólann við Borgarbraut þar sem skákmótið fer fram. Hægt er að skrá sig á staðnum og er þátttaka í mótinu ókeypis. Áhugasömum krökkum af Snæfellsnesi er sérstaklega boðið til mótsins.
Stefnt er að móti verði lokið fyrir kl. 16.00 þegar 1. leikur Snæfells og Stjörnunnar úr Garðabæ í 8-liða úrslitum Iceland Express-deildar karla hefst.