9. maí 2003
Hólmarar taka höndum saman.
Í Stykkishólmi fléttast saman fjölmargir kostir þar sem fallegt umhverfi, saga og gamall bæjarkjarni og gott samfélag, móta umgjörð sem hefur um langa hríð laðað að fólk til búsetu, sem og ferðafólk. Nú bregður hins vegar svo við að bærinn stendur að ýmsu leyti á krefjandi tímamótum, m.a. vegna stöðvunar skelveiða sem hafa verið megin uppistaða í atvinnulífi bæjarins til fjölda ára.
Það er hins vegar ætlun Hólmara að snúa vörn í sókn og það geta þeir best gert með markvissri vinnu þar sem íbúar, félagasamtök, fyrirtæki og bæjaryfirvöld taka höndum saman. Í þessu skyni hefst nú eins árs verkefni þar sem allir þessir aðilar verða virkjaðir til góðra verka, undir yfirskriftinni “Hólmarar taka höndum saman”.
Verkefnið hefst með Atvinnumálþingi sem haldið verður þann 24. maí n.k. Í framhaldi af því taka við ýmis verkefni og undirbúningur fyrir íbúaþing sem haldið verður þann 1. nóvember. Verður niðurstöðum þess síðan fylgt markvisst eftir með almennri samvinnu. Þess má geta að unnið verður sérstaklega með börnum í Grunnskólanum til að fá einnig sjónarmið yngstu aldurshópanna. Verkefnið “Hólmarar taka höndum saman” stendur til vors 2004, en því viðfangsefni að skapa traust atvinnulíf og gott umhverfi og mannlíf í Stykkishólmi, lýkur að sjálfsögðu aldrei.
Umsjón með verkefninu er í höndum ráðgjafarfyrirtækisins Alta og til gamans má geta þess, að verkefnisstjórinn, Sigurborg Kr. Hannesdóttir er úr Hólminum. Lykillinn að góðum árangri með íbúaþingum Alta liggur í reynslu fyrirtækisins og þeim aðferðum sem það beitir. Sjá www.alta.is og www.ibuathing.is.
Hægt verður að fylgjast með framvindu verkefnisins á heimasíðu bæjarins, www.stykkisholmur.is.