5. júlí 2001
Efling Stykkishólms
Efling Stykkishólms er félag atvinnulífsins í Stykkishólmi. Aðild að félaginu eiga fyrirtæki og einstaklingar sem stunda atvinnurekstur svo og stofnanir sem starfa í Stykkishólmi og nágrenni, einnig einstaklingar sem af áhuga vilja styrkja starfsemi félagsins.
Efling Stykkishólms er félag atvinnulífsins í Stykkishólmi. Aðild að félaginu eiga fyrirtæki og einstaklingar sem stunda atvinnurekstur svo og stofnanir sem starfa í Stykkishólmi og nágrenni, einnig einstaklingar sem af áhuga vilja styrkja starfsemi félagsins.
Félagið var stofnað árið 1995 og síðan þá hefur það komið að ýmsum málum. Markmið félagsins er að vinna að framfaramálum á sviði atvinnu- og menningarlífs á svæðinu. Helstu verkefni félagsins til þessa eru talin upp hér að neðan:
Upplýsingamiðstöð ferðamála. Frá upphafi hefur félagið unnið að ýmsum samstarfsverkefnum á sviði ferðamála bæði innan bæjar og utan. Félagið heldur utanum upplýsingar um hverskonar þjónustu og afþreyingu sem er á svæðinu og miðlar til fjölmiðla, handbóka og annarra sem láta sig málin varða. Frá árinu 1997 hefur bærinn styrkt rekstur upplýsingamistöðvar ferðamála á sumrin og hefur Efling Stykkishólms séð um þann rekstur ásamt því að hafa umsjón með rekstri tjaldstæðanna.
Upplýsingamiðstöðin er staðsett í Íþróttamiðstöðinni við Borgarbraut og er opin alla daga í júní, júlí og ágúst kl. 10-18.
Danskir daga – fjölskylduhátíð í Hólminum. Frá upphafi hefur Efling haft yfirumsjón með þessari árlegu hátíð þar sem bæjarbúar og gestir þeirra gera sér glaðan dag. Hún er jafnan haldin þriðju helgina í ágúst. Í ár verða Dönsku dagarnir 17.-19. ágúst.
Sumartónleikar í Stykkishólmskirkju. Síðan sumarið 1996 hefur Efling Stykkishólms skipulagt og haft umsjón með tónleikaröð í Stykkishólmskirkju á sumrin. Þá eru fengnir tónlistarmenn víða að til að leika og syngja í kirkjunni sem er frábært tónleikahús. Er tónleikunum dreift yfir sumarið og eru yfirleitt 6-8 talsins. Í sumar er búið að skipulegga alls 9 tónleika listafólks sem kemur víða að. Bendum við á nánari upplýsingar á heimasíðu Stykkishólmsbæjar og Vestulandsvefnum (á döfinni). Þetta árið er það Kór Stykkishólmskirkju sem heldur utanum tónleikaröðina í samstarfi við Eflingu og er það Ásdís Herrý Ásmundsdóttir sem er þeirra tengiliður. Netfangið hennar er asdisas@binet.is.
Atvinnuvegasýning Vesturlands – Vesturvegur 1999. Í júní 1999 hélt Efling Stykkishólms atvinnuvegasýningu fyrir allt Vesturland. Hlaut sýningin frábæra aðsókn. Um 90 fyrirtæki stór og smá, allstaðar að á Vesturlandi, komu og sýndu hvað þau höfðu upp á að bjóða og gestir sýningarinnar eru taldir hafa verið á bilinu 8-10 þúsund. Ráðgert er að framhald verði á og eftir 3-4 ár verði aftur unnið að svona verkefni.
Regluleg starfsemi. Félagið rekur skrifstofu allt árið og hefur starfsmann í hálfu starfi. Á veturna er félagið til húsa í húsnæði Skipavíkur hf., en á sumrin er starfsemin í Íþróttamiðstöðinni hjá Upplýsingamiðstöð ferðamála. Framkvæmdastjóri er Jóhanna Guðmundsdóttir.
Sími félagsins er 438 1750, fax 438 1780 og netfang: efling@islandia.is.
Stjórn félagsins árið 2001 skipa:
Svanborg Siggeirsdóttir formaður
(sími: 438 1450 – fax: 438 1050 netf.: eyjaferdir@islandia.is)
María Guðmundsdóttir varaformaður
(sími 438 1587 – netfang: harm1587@binet.is)
Magndís Alexandersdóttir ritari
(sími: 438 1207 – fax: 438 1207 – netf: dekksm@islandia.is)
Sumarliði Ásgeirsson
(sími 862-7111 – netf: fimmfiskar@simnet.is)
Unnur Valdimarsdóttir
(vs 438 1304 – hs. 438 1041 fax: 438-1706- netf: holmurinn@10-11.is)