8. apríl 2009
Hólmurinn heillar um Páskana
Það er óhætt að lofa skemmtilegri Páskahelgi í Stykkishólmi. Bingó, tónleikar, flóamarkaður, ball og pítrómót er meðal þess sem boðið verður upp á í bænum. Veðurspáin er prýðileg svo það ætti enginn að vera svikinn af sæluhelgi í Hólminum um Páskana. Upplýsingar um dagskrá og opnunartíma verslunar- og þjónustuaðila má nálgast hér.