Upplýsingar
Stærra letur
Minna letur
Listi
Listi
9. júlí 2001

Tjaldstæðið í Stykkishólmi

Tjaldstæðið í Stykkishólmi er á hægri hönd við innkomuna í bæinn og er það í göngufæri við sundlaug, verslanir og alla almenna þjónustu. Aðstaða fyrir gesti á tjaldstæðinu hefur batnað til muna nú í sumar í kjölfarið á þjónustusamningi sem Stykkishólmsbær gerði við Golfklúbbinn Mostra í Stykkishólmi. Fyrir innan tjaldstæðið stendur nú nýr golfskáli klúbbsins þar sem er einnig aðstaða fyrir gesti tjaldstæðisins. Þar er snyrtiaðstaða, vaskar og til stendur að setja upp þvottavél og þurrkara. Í skálanum er einnig Internetþjónusta og veitingasala. Í eldra þjónustuhúsi við tjaldstæðið eru snyrtingar, sturta, vaskar og snúrur. Einnig er hægt að leigja stór grill á kr. 5.000 stk. Gjald er kr. 500 pr. mann fyrir nóttina fyrir fullorðna, og þriðja nóttin er frí. Ellilífeyrisþegar og öryrkjar fá 50% afslátt.

Upplýsingamiðstöð ferðamanna er staðsett í Íþróttamiðstöðinni við Borgarbraut og er síminn þar 438-1150.

Eldri fréttir
Stykkishólmsbær - Kt. 620269-7009 - Hafnargötu 3 - 340 Stykkishólmur - Sími 433 8100 - Fax 438 1705 - stykkisholmur@stykkisholmur.is - Starfsmenn - Veftré