20. maí 2003
Hólmarar taka höndum saman

Í gær, mánudaginn 19. maí hófst formlega undirbúningsvinna fyrir íbúaþing sem haldið verður í Stykkishólmi 1. nóvember nk. undir yfirskriftinni "Hólmarar taka höndum saman" sem er árs verkefni sem Stykkishólmsbær er lagður af stað með.
Tilgangur verkefnisins er að stilla saman strengi allra hagsmunaaðila og íbúa, til að snúa vörn í sókn á þeim krefjandi tímamótum sem bærinn stendur frammi fyrir.
Undirbúningsvinnan hófst með tveimur fundum sem Sigurborg Kr. Hannesdóttir, verkefnisstjóri frá ráðgjafafyritækinu Alta, stýrði. Á fyrri fundinn voru boðaðir bæjarfulltrúar, forstöðumenn stofnana Stykkishólmsbæjar, fulltrúar í nefndum og ráðum á vegum bæjarins og helstu embættismenn. Á seinni fundinn voru svo boðaðir fulltrúar félagasamtaka, atvinnufyrirtækja og skóla.
Tilgangur þessara undirbúningsfunda var að skoða hvernig verkefnið "Hólmarar taka höndum saman" geti best nýst bænum, hvaða verkefni eru þegar í gangi, fyrirhuguð eða möguleiki að koma á fót, sem geta tengst verkefninu.
Stýrihópur vegna íbúaþings fer svo yfir þau gögn sem unnin verða úr þessum undirbúningsfundum og verður dagskrá íbúaþingsins ákveðin í framhaldi af því.
Lögð er áhersla á að íbúaþingið er ÖLLUM opið, álit allra skiptir máli og fólk getur komið og tekið þátt hluta úr deginum.